Fjöldi fólks fór um helgina í Lónið til að skoða vegsummerki flóðsins
Unnið hefur verið að viðgerð á þjóðvegi 1 í Lóni á um 150 metra kafla austan við Laxá. Miklar skemmdir urðu á veginum í síðustu viku þegar Jökulsá flæddi yfir aurana eftir að hafa rutt burtu varnargarði við Dímu og vatnsflaumurinn ruddist yfir aurana, rann meðfram og yfir veginn og í Laxá. Rigning og hlýindi munu hafa komið vatnavöxtunum af stað og var vatnsmagn Jökulsár gríðarlega mikið. Varnargarðar, sem settir voru á sl.tveim árum sunnanmegin við Jökulsá vörnuðu því að hún flæddi úr farvegi sínum þar. Varnargarðurinn við Dímu var gerður árið 1950 og var skarðið sem áin rauf í hann um hundrað metrar. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni sagði að einhverja daga tæki að gera við veginn og eins að gera varnargarðinn upp og setja grjótvörn á hann.
Fjöldi fólks notaði veðurblíðuna á laugardaginn til að fara í Lónið og skoða vegsummerki flóðsins og var stöðugur straumur bíla inn að Dímu meðan birta entist.




Skrifa athugasemd