Janúar
Borað eftir heitu vatni á Hala
Borað eftir heitu vatni á Hala
Borað eftir heitu vatni á Hala
Mynd 1 af 2
1 2

09.01.2006 Janúar

Heitt vatn úr borholu sem dugar fyrir allt byggðarlagið við Hala

Byrjað var að bora og leita að heitu vatni á Hala í Suðursveit árið 1992 og voru heimamenn vongóðir um að þar væri heitt vatn að finna, sem svo reyndist og á laugardaginn kom í ljós að nægjanlegt heitt vatn er þar að finna. Við byrjuðum leitina á eigin vegum, segir Fjölnir Torfason bóndi á Hala, og við fengum strax góðar vísbendingar um að hér væri heitt vatn að finna og héldum því ótrauð áfram. Það var fyrst 1998 að við fórum að nýta heitt vatn í sambandi við bleikjueldi. Búið er að bora ca. 15 holur og hafa nokkrar þeirra komið að notum við bleikjueldið. Síðan var ein hola valin fyrir djúpborun og nú um helgina varð ljóst að þar er nægjanlegt heitt vatn fyrir alla bæina hér. Þessi aðalhola er rétt vestan við bæinn og er aðeins um 300 m. í næsta hús. Þegar dýpkun hennar lauk var hún orðin 630 m djúp og hafði vatnsrennsli aukist. Ekki er búið að mæla hita vatnsins en í hitastigul 473 var hitinn 78° c og vonast er til að ná 60-70° heitu vatni inni í húsunum.. Reiknað er með að þurfi um tvo sek.lítra vatns til neyslu fyrir byggðarlagið við Hala og er fyllilega svo mikið vatn sem þar kemur upp.

Það var stór stund hjá þeim hjónum Þorbjörgu og Fjölni á Hala svo og öllum sem að þessu verkefni hafa staðið þegar ljóst varð að fullur árangur varð, bæði af mikilli bjartsýni og miklu starfi þó mikið sé óunnið áður en hægt verður að skrúfa frá krana heima í húsum með heita vatninu frá borholunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica