Hornfirðingar keyptu 10% hlut í flugfélaginu CityStar
Hópur Hornfirðinga hefur keypt 10% hlutabréfa í flugfélaginu CityStar í Aberdeen í Scotlandi. Þetta flugfélag er í eigu íslendinga með aðalstöðvar sínar í Aberdeen og er með beint leiguflug þaðan til London, Ósló, Stavanger og hefur einnig verið með leiguflug til Íslands. Til gamans má geta þess að umferð um Aberdeen flugvöll er meiri en um Keflavíkurflugvöll. Að sögn Halldóru B. Jónsdóttur eru hluthafar um 20 og flestir úr hópi trillukarla á Hornafirði. Kaupin voru ákveðin á fundi með eigendum flugfélagsins sem haldinn var í nóvember sl. og var einnig ákveðið að eigendur flugfélagsins tækju þátt í vinnu sem er í gangi hér í Sveitarfélaginu um eflingu ferðaþjónustunnar. Fyrir utan að vera mjög góður fjárfestingarkostur þá er Halldóra þess fullviss að fyrir svæðið hér geti samvinna flugfélagsins og heimamanna stuðlað að og styrkt uppbyggingu á öflugri ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu. CityStar á og rekur Landsflug sem það keypti í sumar en það er Landsflug sem sér um flugáætlunarferðir milli Hafnar og Reykjavíkur. Framkvæmdarstjóri fyrirtækisins er Rúnar Fossádal Árnason. Flugfélagið stefnir á að sú hraðfleyga vél sem komið hefur af og til verði komin í fasta áætlun á þessari leið frá og með 6. febrúar nk.
Hornfirðingar eru mjög óánægðir með lélegt viðhald Hornafjarðarflugvallar og lokun þverbrautar flugvallarins sem hefur takmarkað lendingu flugvéla þ.a.m.t. sjúkraflugvéla og skapað hættuástand við viss veðurskilyrði. Halldóra segir að von sé á starfsmönnum Flugmálastjórnar til Hornafjarðar á næstunni til viðræðu við bæjarstjórnarmenn.
Heimasíða CityStar Airlines





Skrifa athugasemd