Janúar
Þorrablótsnefndin 2006
Þorrablótsnefndin 2006
Hluti nefnadarmanna utan á Hótel Höfn
Mynd 1 af 3
1 2 3

04.01.2006 Janúar

Allt komið á fulla ferð við undirbúning blótsins

Þorrablótsnefndin hefur nú komið saman á ný eftir jólafrí og allt komið á fulla ferð við undirbúning blótsins í janúar. Upplýsingafulltrúi nefndarinnar sagði að búið væri að ganga frá samningum við Hótel Höfn um veitingar á þorrablótinu og voru samningar þar að lútandi undirritaðir nú á dögunum. Nefndin hefur lagt mikinn metnað í að fá góða hljómsveit til að spila á blótinu og hefur verið haft samband við stór nöfn í bransanum bæði hérlendis og erlendis. Ekki er hægt að greina frá að svo stöddu hvaða hljómsveit mun hreppa hnossið þar sem ekki er endanlega búið að ganga frá þeim samningum en upplýsingafulltrúinn upplýsti að það hefði komið sér vel að hafa aðila úr forystusveit björgunarsveitarinnar í nefndinni því þeir byggju orðið yfir gífurlegri reynslu af samningagerð við fræga erlenda aðila eftir að hafa unnið með James Bond, Batmann, Bjólfi og fleirum.

En það er ljóst að þekkt nöfn í þessum geira eru dýr og hefur nefndin því náð samkomulagi við vertana Óðinn og Gísla um að nefndarmenn skipti um klæðningu á Hótelinu og sinni fleiri verkefnum fyrir þá upp í kostnað á veitingunum og eins og sjá má af mydunum er áhuginn gýfurlegur og engin grið gefin svo að vel til takist. Upplýsingafulltrúinn sagði að annars gengi allt vel, handritið væri tilbúið og skreytingarnefndin væri að leggja lokahönd á sinn hluta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica