Janúar
Mikið skotið upp af flugeldum á Höfn
Áramótin fórum mjög vel fram í sveitarfélaginu enda veðrið var eins og best var á kostið. Fjöldi manns mætti á brennuna og eins og venjan er hélt Björgunarfélag Hornafjarðar glæsilega flugeldasýningu. Fljótlega eftir útsendingu áramótaskaups Sjónvarpsins fóru menn að skjóta upp flugeldum og var þeim skotið upp fram yfir miðnætti. Það er mál manna að sjaldan hafi verið skotið upp eins mikið af flugeldum.
Áramótadansleikur var haldin á Víkinni og gerðu margir sér glaðan dag fram undir morgun.




Skrifa athugasemd