Slegist um hlutverk Alberts bæjarstjóra
Innan þorrablótsnefndar ríkir nú djúpstæður ágreiningur sem erfitt virðist að leysa. Fréttamaður vefsins náði tali af upplýsingafulltrúa nefndarinnar sem sagði að þetta væri búið að vera mjög erfitt. Ástæða ágreiningsins sagði upplýsingafulltrúinn vera þá að það virtist sem menn hefðu komið til starfa í nefndinni með það að leiðarljósi að þeim væri ætlað að leika Albert bæjarstjóra. Þegar farið var að útdeila hlutverkum kom í ljós að a.m.k. átta einstaklingar ætluðu sér hlutverkið. Þetta er búin að vera þrautaganga sagði upplýsingafulltrúinn við erum nokkur sem höfum tekið að okkur að ná sættum í málinum en loka niðurstaðan var sú að það færu fram áheyrnarprufur og besti Albertinn valinn úr.
Sátt hefur náðst um að allir ætli að una niðurstöðu dómnefndar.





Skrifa athugasemd