Gáfaðasta hljómsveit landsins spilar á Þorrablótinu.
Þorrablótsnefnd hefur sent frá sér fréttatilkynningu þess efnis að búið er að ráða hljómsveit. Nefndin hefur verið að bíða eftir niðurstöðu um það hver sé gáfaðasta hljómsveit landsins og það kom í ljós í úrslitum í síðasta þætti af Popp punkt en þar báru Miljónamæringarnir sigur úr bítum. Var strax að loknum úrslitum drifið í að semja við þessa gáfuðu hljómsveit og mun hún því spila á Þorrablótinu. Söngvarar sveitarinnar verða þeir Bogomil Font og Bjarni Ara. Við erum að vonum mjög ánægð með þessa niðurstöðu sagði upplýsingafulltrúi nefndarinnar í viðtali við vefinn í morgun, þetta er búinn að vera langur og spennadi ferill en nú er allt að verða klappað og klárt.
Það er ljóst að veðurguðirnir ætla að verða okkur hliðhollir þorrablótshelgina, allir bátar í landi og enginn fótbolti sagði upplýsingafulltrúi nefndarinnar að lokum.





Skrifa athugasemd