Ríki Vatnajökuls - Desember
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
The same procedure as every year
      <description>90 ára afmælið eða "Dinner for one" verður sýnt á SkjáVarpi gamlárskvöld kl. 2200. Hefð er fyrir því að sýna þennan stutta breska svarthvíta leikþátt um hver áramót í Þýskalandi, Danmörku og nokkrum öðrum Evrópulöndum. Leikþátturinn fjallar um hefðarfrúna Miss Sophie sem er að halda upp á 90 ára afmælið sitt. Vandamálið er að allir gestirnir í afmælinu eru ímyndaðir "vinir" sem allir hafa farið yfir móðuna miklu. En Miss Sophie heldur sínu striki og býður þeim til veislu á hverju ári og lætur eins og þeir séu allir mættir. Eins og sagt er í þeim löndum sem hafa haft þáttinn til sýningar um hver áramót,,, það eru engin áramót nema heyra  þjóninn James og Miss Sophie segja “The same procedure as last year, Madam? - The same procedure as every year, James.”</description>
Hornafjarðarmeistaramótið í HornafjarðarMANNA
      <description>Hornafjarðarmeistaramótið árið 2005 var haldið í Nýheimum 29. desember. Þátttakendur voru 81. Úrslitakeppnin var spennandi að venju þar sem að lokum aðeins þrír spilarar keppa um titilinn. Þeir sem komust áfram í lokaumferðina voru Ingólfur Baldvinsson, Ragnar Sigurðsson og Sverrir Guðmundsson sem stóð uppi sem sigurvegari. Ingólfur varð annar og Ragnar þriðji. Útbreiðslustjórinn Albert Eymundsson var mjög ánægður með mótið og sagði að Hornafjarðarmannamótin gengju það vel orðið að stjórnandi þyrfti lítið að hafa sig í frammi.</description>
Aldrei fleiri jólakveðjur á Skjávarpi en nú
      <description>Jóla- og áramótakveðjur SkjáVarps hafa fest sig í sessi enda verið hluti af jólastemmingunni á Hornafirði undanfarin 12 ár. Að þessu sinni voru um 130 kveðjur  sendar voru út á SkjáVarpi sem er nýtt met. Nú ertu það ekki eingöngu félög, fyrirtæki og stofnanir sem senda kveðjur því einstæklingar hafa í auknum mæli nýtt sér þessa leið til að koma kveðju sinni á framfæri. Með textanum (kveðjunni) eru birtast bakgrunnsmyndir úr Sveitarfélaginu og undir þeim er spiluð jólatónlist. Sú nýbreytni verður nú tekin upp nýárskveðjur SkjáVarps verða einnig aðgengilegar á vefsíðu Skjávarps auglýsendum að kostnaðarlausu, nánar auglýst á SkjáVarpi og hér á Hornafirði.is. Kveðjurnar verða sendar verða út á Skjávarpi gamlársdag kl. 15 og verða um leið aðgengilegar á vefnum. Með því að senda kveðjurnar einnig út á vefnum er verið að tryggja að nær allir í Sveitarfélaginu hafa aðgang að þeim. Á nýju ári mun SkjáVarp verða aðgengilegt á vefnum sem styrkir það enn meir sem öflugasta upplýsinga- og auglýsingamiðil sveitarfélagsins.</description>
Ómar Antonsson selur perlumöl til Arisona
      <description>Litla-Horn, fyrirtæki Ómars Antonssonar á Höfn hefur gert samning um sölu á perlumöl til fyrirtækis í Bandaríkjunum. Það eru aðilar í Arisona sem kaupa mölina og fer fyrsti farmurinn, eitt þúsund tonn, út um áramótin og síðan 4-5 þús. tonn á árinu 2006 og 10 þúsund tonn árið 2007. Perlurnar verða m.a. notaðar í klæðningu í sundlaugar. Perlumölin er tekin á Austurfjörukambinum, henni mokað upp með hjólaskóflu, sigtuð, sett í poka og tekin um borð í skip. Verið er að hanna trébryggju sem sett verður við Austurfjörurnar innanfjarðar gegnt Lambhelli. Reiknað er með að allt að 3000 tonna skip geti lagst að bryggjunni. Stærð perlusteinanna á að vera frá 1-5 mm og það er þessi dökki og svarti litur sem er mest eftirsóttur enda steinarnir vel slípaðir og mjög fallegir. Þetta eru náttúruperlur sem koma undan jöklinum og berast með jökulvatninu út í ós segir Ómar.</description>
      <alt>Ómar Antonsson</alt>
Hornfirska rokkhljómsveitarin Modis gefur út fyrsta breiðskífuna
      <description>Í dag 22.desember kemur út fyrsta breiðskífa Hornfirsku rokkhljómsveitarinnar Modis. Hljómsveitin tók upp plötuna að hluta í Geimsteini studio Rúnar Júlíussonar í haust Hinn hlutann sáu þeir um sjálfir og tókst vel upp. Hljómsveitin hefur starfað saman í núverandi formi síðan í ágúst og hefur komið opinberlega fram tvisvar sinnum og spilað kröftugt rokk með frábærum undirtektum allra. Öll lögin á plötunni eru frumsamin og útsett af hljómsveitameðlimum. Þeir eru núþegar farnir að vinna í nýrri plötu sem vonandi kemur út í byrjun næsta árs.</description>
      <alt>Modis</alt>
Varað við grjóthruni í Hvalnes
      <description>Vegagerðin varaði vegfarendur við grjóthruni í Hvalnes og Þvottárskriðum í gærkvöldi. Mikið grjót var komið á veginn í morgun einkum í Hvalnesskriðum og ekki fært nema þá á jeppum en fæstir vilja þó aka yfir egghvasst grjótið öruggir með að skemma dekkin.Póstbíllinn sem þar var á ferð í nótt eyðilagði dekk en ekki er vitað um frekari skemmdir. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir þetta svo sem ekkert vera verra en venjulega, þetta er alltaf  að koma upp á  þegar búið er að frysta og svo rignir og þá fer grjótið á stað.</description>
Rauðakrossdeildin gaf hálfa milljón króna í söfnunina
      <description>Í gær afhenti Þórgunnur Torfadóttir, á vegum Rauða krossins, Ragnhildi Magnúsdóttur héraðslækni hálfa milljón króna frá Rauðakrossdeildinni í söfnunina til kaupa á nýjum röntgenmyndabúnaði fyrir heilsugæslustöðina á Hornafirði. Hafa nú safnast sex milljónir króna sem eru að miklum hluta frá einstaklingum. Tækin sem kaupa á kosta um ellefu milljónir og er afgreiðslutími u.þ.b. 3 mánuðir þegar tekist hefur að útvega fjármagn. Læknarnir Ragnhildur og Auðbergur sögðu að þau tæki sem eru á heilsugæslustöðinni væru á síðasta snúningi því væri mikil þörf á að félagasamtök á staðnum og atvinnufyrirtæki legðu þessu máli lið – það skiptir mjög miklu fyrir íbúa sveitarfélagsins að röntgentæki séu á staðnum .</description>
Treystir enn frekar samstarf í menningarmálum
      <description>Í gær voru undirritaðir þríhliða samningar milli Menningarráðs Austurlands og fjögurra menningarmiðstöðva og sveitarfélaga sem reka þær. Sveitarfélögin eru Sveitarfélagið Hornafjörður, Fljótsdalshérað, Fjarðabyggð og Seyðisfjarðarkaupstaður. Undirritunin fór fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Undirritunin er stór áfangi í menningaruppbyggingu á Austurlandi og treystir enn frekar samstarf Austfirðinga í menningarmálum. Samningar þessir eru gerðir á grundvelli samnings sveitarfélaga á Austurlandi og ríkisins sem undirritaður var í mars síðast liðinn. Í þeim samningi er gert ráð fyrir að Menningarráð Austurlands geti veitt menningarmiðstöðvunum árlega styrki til menningarstarfs enda komi jafnframt mótframlag frá viðkomandi sveitarfélagi eða rekstraraðila.</description>
Létt 96,7 á Skjávarpi
      <description>Áhorfendur upplýsinga- og auglýsingamiðilsins Skjávarps hafa undanfarið tekið eftir því að útvarpsstöðin Létt 96,7 hefur hljómað sem bakgrunnstónlist á sjónvarpsrásinni. Nú hljóma þar jólalögin eins og þau gerast best. Útvarpsstöðin Létt 96,7 eins og nafnið bendir til, spilar létta og notalega tónlist fyrir hlustendur. Víða þar sem   SkjáVarpsskjáir eru í verslunum og þjónustufyrirtækjum á Höfn er útvarpsrásin látin hljóma frá SkjáVarpstækjunum fyrir gesti og gangandi. Eins hefur heyrst að sjónvarpstækið í stofunni m.a. stillt á SkjáVarp til að njóta notalegarar tónlistar Létt 96,7 og koma sér jólaskapið.</description>
      <alt>Létt 96,7 á Skjávarpi</alt>
Heilbrigðisstofnun hvetur til bólusetningar við hettusótt
      <description>Heilbrigðisstofnun Suð-austurlands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem einstaklingar fæddir árið 1981-1986 hvattir til að mæta í bólusetningu fyrir hettusótt á heilsugæslustöðina á Höfn. Þessi tilkynning er send samkvæmt tilmælum frá landlæknisembætti Íslands. Gripið er til þessarar bólusetningar núnar þar sem það virðist ljóst að hettusóttarfaraldurinn er ekki í rénun eins og reiknað var með. Í ljósi þess að einstaklingar á þessum aldri eru að fá hettusóttina þá eru gripið þess að bólusetja þennan aldursflokk.  Tímapantanir í bólusetningu á heilsugæslustöð Hornafjarðar er í síma 478-1400. Bólusetningin er einstaklingum að kostnaðarlausu.</description>
Glæsileg sýning á himinhvolfinu í ríki Vatnajökuls
      <description>Íbúar í ríki Vatnajökuls hafa undanfarið haft glæsilega sýningu sem farið hefur fram á himinhvolfinu yfir Hornafirði. Þar hefur sólsetur litað himininn með mikilli litadýrð, norðurljósin hafa skartað sínu fegursta og svo síðust daga hafa glitský bæst við sýninguna. Sjónarspil þetta hefur verið skemmtileg viðbót við ljós og skreytingar jólanna sem prýða bæinn og hafa ljósmyndarar ekki látið dýrðina fram hjá sér fara eins og fram kemur með meðfylgjandi myndum. Glitskýin sem einnig eru nefnd perlumóðurský eða ísský myndist í heiðhvolfinu í um 25 km. hæð en Venjuleg ský ná sjaldnast á okkar slóðum upp fyrir 12 km hæð eða upp að endimörkum veðrahvolfsins við veðrahvörfin . Glitskýin samanstanda af örsmáum ískristöllum, sem myndast við þegar sá litli raki sem til staðar er þetta hátt upp nær að þéttast við sérstakar aðstæður (heimild Einar Sveinbjörnsson).</description>
Hlaut styrk til verkefnisins "Spa Vatnajökull"
      <description>Nýlega hlaut Stella Sigfúsdóttir hjá Spa Akademíu ehf./Spa Academia Ltd. styrk frá Frumkvöðlastuðningi IMPRU nýsköpunarmiðstöð, til verkefnisins “Spa Vatnajökull.”  Styrkinn mun Stella nýta til þess að gera forrannsókn á fýsileika þess, að stofna heilsulind – Spa Vatnajökul - í ríki Vatnajökuls.  Nú er unnið að viðamiklum verkefnum og rannsóknum í sjálfbærri ferðaþjónustu, ásamt áætlunum um framtíðarþróun í og við væntanlegan Vatnajökulsþjóðgarð. Stella hefur meistaragráðu, MBA, í alþjóðlegri hótel- og ferðaþjónustu frá Bandaríkjunum, með stofnun og rekstur heilsulinda (spas), sem sérsvið.  Hún er einnig viðskiptafræðingur af markaðssviði frá Háskóla Íslands. Spa Akademía ehf. er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki í heilsutengdri þjónustu (spa iðnaði) og er Stella Sigfúsdóttir stofnandi og stjórnarformaður.</description>
      <alt>Stella Sigfúsdóttir</alt>
KHB kaupir þrjár af fasteignum Skálatinda
      <description>Eignarhaldsfélagið Skálatindar á Hornafirði hafa gert samning við Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum um kaup KHB  á þrem fasteignum Skálatinda sem eru verslunarhúsið Miðbær við Litlubrú, Vöruhúsið Hafnarbraut 30 (Jöklasafnið) og Verslunarhúsið Vesturbraut 3 þar sem verslunin Krónan er til húsa. Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri KASK segir að kaupsamningar verði undirritaði einhvern næsta dag. Hann segir nýju eigendurna taka við leigusamningum við alla rekstraraðila sem eru með fyrirtæki í þessum húsum en þar eru nokkrar verslanir, þjónustufyrirtæki, skólaaðstaða og Jöklasafnið.</description>
      <alt>Miðbær</alt>
3600 hænur drápust þegar eldur kom upp í hænsnabúinu í Grænahrauni
      <description>Slökkvilið Hornafjarðar var kallað út kl. 14.00 í dag vegna elds í hænsnahúsi á Grænahrauni í Nesjum. Að sögn Steinþórs Hafsteinssonar slökkviliðsstjóra var mikill reykur og  eldur í húsinu, vel gekk að slökkva eldinn og var því lokið á rúmum hálftíma. Húsið verður vaktað fram eftir kvöldi. Í húsinu voru um 3600 hænur sem allar drápust og er hænsnahúsið mikið skemmt. Grænahraunsbúið er stærsti eggjaframleiðandi á svæðinu suðaustanlands og er tjón bændanna mikið þó búið sé vátryggt. Ekki er vitað um eldsupptök.</description>
Jólatréssala í Haukafelli á Mýrum
      <description>Laugardaginn 17. desember verður hinn árlega jólatréssala í Haukafelli á Mýrum. Þá gefst fólki kostur á að koma í skóginn og fella sitt eigið jólatré. Hægt er að fá aðstoð jólasveina við verkið, en þeir búa í Fláfjalli sem er sjónhending frá Haukafelli. Í þjónustuhúsinu verður hægt að fá hressingu. Einnig er hægt að fá furu- og birkigreinar og eldivið. Öllum ágóða af sölunni verður varið til frekari uppbyggingar á útivistarsvæðinu í Haukafelli. Unnið hefur verið að því undanfarin ár að gera svæðið aðgengilegt og aðlaðandi sem útivistarsvæði fyrir almenning, með vinnuframlögum velviljaðs fólks og fjárframlögum frá Sveitarfélaginu, Vegagerðinni og ýmsum sjóðum.</description>
Jólamarkaður Markaðstorgs Hornafjarðar.
      <description>Eins og bæjarbúar flestir vita missti Markaðstorg Hornafjarðar húsnæðið þegar sælgætisverksmiðjan Freyja keypti Hornabæ núna í haust. Það hefur hins vegar verið mikill áhugi fyrir jólamarkaði og margir komið að tali við forsvarsmenn  Markaðstorgsins  þar að lútandi. Því var ákveðið að slá til og halda, í samvinnu við Miðbæ, markað laugard.10.des frá kl. 11- 16. Alls hafa um 16 sölumenn tilkynnt þátttöku svo ljóst er að úrvalið verður mikið. Á boðstólnum verður matvara af ýmsu tagi, Sævar og Reynir mæta með jólasteikurnar, svínakjöt,endur og fasana. Bestfiskur sér um fiskinn og Álarannsóknafélaga Hornafjarðar verður með reyktan ál á boðstólnum. Konurnar í Kvenfélaginu Ósk úr Suðursveit sem þekktar eru fyrir skörungsskap mæta með brauð og kökur og Halabændur með lax og silung.</description>
Jólatónleikar Kvennakórsins í Nýheimum í kvöld
      <description>Kvennakórinn fær góða gesti á jólatónleika sína sem verða í Nýheimum í kvöld . Það eru þau Nanna Halldóra Imsland og Elvar Bragi Kristjónsson, auk Sr. Einars Jónssonar sem mun spila á píanóið meðan gestir gæða sér á kökum af hlaðborði. Stjórnandi kórsins verður sem fyrr Sigjón Bjarnason en nú verður í fyrsta skipti opinberlega með kórnum, undirleikarinn Svavar Sigurðsson frá Djúpavogi. Að sögn Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá er mjög lífleg starfsemi í kórnum og m.a. þá stendur yfir fjáröflun til styrktar kórnum. Þar völdu kvennakórskonur þá fjáröflunarleið að gefa út mjög frumlegt dagatal þar sem kvennakórskonur eru myndefnið. Þeir sem vilja kaupa dagatalið og styrkja þá um leið kvennakórinn geta nálgast það á tónleikunum í kvöld eða  hjá kvennakórskonum. Það er einnig til sölu í Jaspís, Húsgagnaval og á Hótel Höfn.</description>
      <alt>Kvennakór</alt>
Efnalaug Dóru opnar jólamarkað í Orkuvershúsinu
      <description>Efnalaug Dóru hefur nú opnað jólamarkað í Orkuvershúsinu og er þetta í fyrsta skipti sem það er gert á vegum fyrirtækisins. Að sögn Halldóru Ingólfsdóttir (Dóru) þá verður á markaðnum mikið úrval af rúmfötum, handklæðum, dúkum nærfötum og náttfötum, blússum og bolum ásamt barnafatnaði, húfum vettlingum og sokkum á alla fjölskylduna. Einnig er fyrirtækið með útivistarfatnað frá Regatta. Dóra segir að jólavertíðin sé hafin hjá þeim í sölu og svo er stærsti mánuðurinn í hreinsun í efnalauginni. Að sögn Dóru þá hefur það aukist að fólk kemur með gardínur og mottur sem það vill láta hreinsa fyrir jólin og eru flestir farnir að gera sér grein fyrir því að það borgar sig að gera það tímanlega. Hjá Verslun og Efnalaug Dóru vinna nú 4 starfsmenn.</description>
      <alt>Efnalaug Dóru</alt>
5,2 milljónir hafa safnast til kaupa á röntgentækjum
      <description>Eins og áður hefur komið fram eru fyrirhuguð kaup á stafrænum röntgentækjum fyrir Heilbrigðisstofnun suðausturlands sem kosta um 11 milljónir. Fjársöfnun er hafin og hafa nú þegar safnast 5.250.000.- þar af 5 milljónir frá einstaklingum! Næstu daga verða send út bréf til fyrirtækja í sveitarfélaginu með beiðni um styrk. Núverandi röntgentæki á Heilsugæslustöðinni eru frá árinu 1983 og löngu orðin úrelt og ekki hægt að gera við þau lengur. Þau eru óáreiðanleg í rekstri og erfitt að fá röntgengreiningu með þeim. Þar sem ekki er til fjárveiting til svona tækjakaupa stóla stjórnendur HSSA á að geta safnað fyrir tækjunum.</description>
Kveikt á jólatrénu
      <description>Á sunnudaginn kemur kl. 17:00 verður kveikt á jólatré Hornafjarðar við hátíðlega athöfn. Jólatréð sem kemur úr Hallormsstaðarskógi stendur í Tjarnarlundi við íþróttahús Hafnar eins og undanfarin ár. Við athöfnina leikur lúðrasveit, flutt verður ávarp og hugvekja, brugðið á leik og sungin jólalög. Ungir Hornfirðingar tendrar jólaljósin að þessu sinni.  Þegar síðast var haft samband við Grýlu gömlu var hún að elda kjarnmikla kjötsúpu handa jólasveinunum og búa þá undir  ferðalag til byggða. Taldi hún ekki ólíklegt að fyrstu bræðurnir kæmu til Hornafjarðar um svipað leiti og kveikt yrði á jólatrénu þvi færið er sérlega gott núna mikill snjór svo varla sést út um hellismunnann.</description>
Í jöklanna skjóli, heimildakvikmynd um horfna lifnaðarhætti í Skaftafellssýslum.
      <description>Þjóðminjasafn Íslands sýnir, í samstarfi við Kvikmyndasjóð Skaftfellinga heimildakvikmyndina Í jöklanna skjóli sem Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari tók á árunum 1952-1954 í Skaftafellssýslum. Skýringartexta samdi Jón Aðalsteinn Jónsson og er hann jafnframt flytjandi textans. Kvikmyndin er í all mörgum þáttum og hafa alls sex þættir verið sýndir að undanförnu.  Síðasti hluti kvikmyndarinnar verður sýndur í dag fimmtudaginn 1. desember. Þá verða þessir þættir á dagskrá: Kolagerð, Meltekja , Úr Mýrdal í Lón. Kvikmyndin er sýnd í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu og hefst sýningin að þessu sinni kl. 17:15. Kvikmyndasýningin tekur um klukkustund. 
|nl|Að lokinni kvikmyndasýningu verður safnið opið gestum til kl. 21:00 og ennfremur Kaffistofa og Safnbúð. Sérfræðingur Þjóðminjasafnsins mun leiða gesti um þá hluta grunnsýningar safnsins sem tengist efni kvikmyndarinnar hverju sinni.</description>
Byggjum betra samfélag, skrúðganga um bæinn
      <description>Í dag 1. desember ætla nemendur og kennarar í Hafnarskóla í skrúðgöngu í tilefni dagsins og ljúka þar með formlega verkefninu "byggjum betra samfélag". sem skólinn hefur unnið að síðustu vikurnar. Að sögn Eyglóar Illugadóttur aðstoðarskólastjóra í Hafnaraskóla þá lýkur þannig verkefni aldrei þar sem skólinn verður stöðugt að vera vakandi fyrir lýðræði og jafnrétti og gæta þess að  mismunun, einelti og annað óæskilegt atferli þrífist ekki meðal okkar.  Í dag fá allir í skólanum afhenta boli með merki skólans og einkunnarorðum og skarta honum. Eygló minnir þó á að nauðsynlegt að krakkar komi vel klædd því að lagt verður af stað í gönguna kl. 10:15 og gæti ganga staðið til hádegis.</description>