Desember
Dinner for One á Skjávarpi
Dinner for One á Skjávarpi
Dinner for One á Skjávarpi gamlárskvöld kl.22

31.12.2005 Desember

The same procedure as every year

90 ára afmælið eða Dinner for one á SkjáVarpi

90 ára afmælið eða "Dinner for one" verður sýnt á SkjáVarpi gamlárskvöld kl. 2200. Hefð er fyrir því að sýna þennan stutta breska svarthvíta leikþátt um hver áramót í Þýskalandi, Danmörku og nokkrum öðrum Evrópulöndum. Leikþátturinn fjallar um hefðarfrúna Miss Sophie sem er að halda upp á 90 ára afmælið sitt. Vandamálið er að allir gestirnir í afmælinu eru ímyndaðir "vinir" sem allir hafa farið yfir móðuna miklu. En Miss Sophie heldur sínu striki og býður þeim til veislu á hverju ári og lætur eins og þeir séu allir mættir. Eins og sagt er í þeim löndum sem hafa haft þáttinn til sýningar um hver áramót,,, það eru engin áramót nema heyra þjóninn James og Miss Sophie segja "The same procedure as last year, Madam? - The same procedure as every year, James."

Nú er bara að setjast fyrir framan Sjónvarpið og horfa á þennan sprenghlægilega gamanþátt sem er ágætis upphitun fyrir áramótaskaupið í Sjónvarpinu. Þátturinn er sýndur gamlárskvöld á Skjávarpi kl.22:00

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica