Desember
Skjávarpstæki
Skjávarpstæki
Skjávarpstæki

29.12.2005 Desember

Aldrei fleiri jólakveðjur á Skjávarpi en nú

Jóla- og áramótakveðjur SkjáVarps hafa fest sig í sessi enda verið hluti af jólastemmingunni á Hornafirði undanfarin 12 ár. Að þessu sinni voru um 130 kveðjur sendar voru út á SkjáVarpi sem er nýtt met. Nú ertu það ekki eingöngu félög, fyrirtæki og stofnanir sem senda kveðjur því einstæklingar hafa í auknum mæli nýtt sér þessa leið til að koma kveðju sinni á framfæri. Með textanum (kveðjunni) eru birtast bakgrunnsmyndir úr Sveitarfélaginu og undir þeim er spiluð jólatónlist. Sú nýbreytni verður nú tekin upp nýárskveðjur SkjáVarps verða einnig aðgengilegar á vefsíðu Skjávarps auglýsendum að kostnaðarlausu, nánar auglýst á SkjáVarpi og hér á Hornafirði.is. Kveðjurnar verða sendar verða út á Skjávarpi gamlársdag kl. 15 og verða um leið aðgengilegar á vefnum. Með því að senda kveðjurnar einnig út á vefnum er verið að tryggja að nær allir í Sveitarfélaginu hafa aðgang að þeim. Á nýju ári mun SkjáVarp verða aðgengilegt á vefnum sem styrkir það enn meir sem öflugasta upplýsinga- og auglýsingamiðil sveitarfélagsins.

Sjónvarpsdreifikerfi SkjáVarps nær til um 94% íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði og er sent út með sjónvarpssendi og í kapalkerfi. Auk þess eru uppsett Skjávarpstæki í flestum verslunar- og þjónustufyrirtækjum á Höfn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica