Desember
Grjóthrun í Þvottárskriðum
Grjóthrun í Þvottárskriðum
Eins og sjá má á myndinni geta steinarnir verið mjög stórir sem falla á veginn í Þvottár- og Hvalnesskriðum . (úr myndasafni)

20.12.2005 Desember

Varað við grjóthruni í Hvalnes

Vegagerðin varaði vegfarendur við grjóthruni í Hvalnes og Þvottárskriðum í gærkvöldi. Mikið grjót var komið á veginn í morgun einkum í Hvalnesskriðum og ekki fært nema þá á jeppum en fæstir vilja þó aka yfir egghvasst grjótið öruggir með að skemma dekkin.Póstbíllinn sem þar var á ferð í nótt eyðilagði dekk en ekki er vitað um frekari skemmdir. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir þetta svo sem ekkert vera verra en venjulega, þetta er alltaf að koma upp á þegar búið er að frysta og svo rignir og þá fer grjótið á stað.

Reynir segir að búast megi við svipuðu ástandi í skriðunum meðan eitthvað rignir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica