Desember
Ragnhildur og Þórgunnur
Ragnhildur og Þórgunnur
Rauðakrossdeildin styrkti söfnunina fyrir nýjum röntgentækjum. Ragnhildur Magnúsdóttir yfirlæknir tekur á móti gjöfinni frá Þórgunni Torfadóttur (úr myndasafni).

20.12.2005 Desember

Rauðakrossdeildin gaf hálfa milljón króna í söfnunina

Í gær afhenti Þórgunnur Torfadóttir, á vegum Rauða krossins, Ragnhildi Magnúsdóttur héraðslækni hálfa milljón króna frá Rauðakrossdeildinni í söfnunina til kaupa á nýjum röntgenmyndabúnaði fyrir heilsugæslustöðina á Hornafirði. Hafa nú safnast sex milljónir króna sem eru að miklum hluta frá einstaklingum. Tækin sem kaupa á kosta um ellefu milljónir og er afgreiðslutími u.þ.b. 3 mánuðir þegar tekist hefur að útvega fjármagn. Læknarnir Ragnhildur og Auðbergur sögðu að þau tæki sem eru á heilsugæslustöðinni væru á síðasta snúningi því væri mikil þörf á að félagasamtök á staðnum og atvinnufyrirtæki legðu þessu máli lið ? það skiptir mjög miklu fyrir íbúa sveitarfélagsins að röntgentæki séu á staðnum .

Við látum hér fylgja með upplýsingar um söfnunarreikninginn sem heilsugæslustöðin hefur opnað vegna söfnunarinnar. Reikningurinn er í Sparisjóð Hornafjarðar og nágrennis, nr. 1147- 05- 401400 kt: 550185-0329 , en þess má geta að Sparisjóðurinn gaf 250.000 kr. til söfnunarinnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica