Treystir enn frekar samstarf í menningarmálum
Undirritun samninga Menningarráðs Austurlands og sveitarfélaga á Austurlandi sem reka menningarmiðstöðvar
Í gær voru undirritaðir þríhliða samningar milli Menningarráðs Austurlands og fjögurra menningarmiðstöðva og sveitarfélaga sem reka þær. Sveitarfélögin eru Sveitarfélagið Hornafjörður, Fljótsdalshérað, Fjarðabyggð og Seyðisfjarðarkaupstaður. Undirritunin fór fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Undirritunin er stór áfangi í menningaruppbyggingu á Austurlandi og treystir enn frekar samstarf Austfirðinga í menningarmálum. Samningar þessir eru gerðir á grundvelli samnings sveitarfélaga á Austurlandi og ríkisins sem undirritaður var í mars síðast liðinn. Í þeim samningi er gert ráð fyrir að Menningarráð Austurlands geti veitt menningarmiðstöðvunum árlega styrki til menningarstarfs enda komi jafnframt mótframlag frá viðkomandi sveitarfélagi eða rekstraraðila.
Í framhaldi af mótun stefnu í menningarmálum á Austurlandi og síðar með gerð samnings á milli sveitarfélaga og ríkisins árið 2001 var ákveðið að á Austurlandi yrðu fjórar menningarmiðstöðvar með mismunandi áherslur. Á Seyðisfirði er menningarmiðsstöðin Skaftfell með áherslur á myndlist, Menningarmiðstöðin á Fljótsdalshéraði leggur áherslu á sviðslistir, í Kirkju og menningarmiðstöðinni Eskifirði, Fjarðabyggð er áhersla á tónlist og sýningarhald og Í Menningarmiðstöð Hornafjarðar er áherslan á bókmenntir og handverk.
Með þeim samningum sem undirritaðir eru í dag, er stigið enn eitt skrefið sem miðar að eflingu menningarstarfs á Austurlandi. En með þeim er gert ráð fyrir að menningarmiðstöðvarnar sinni og hafi frumkvæði að þróunarstarfi, fræðslu og þekkingaruppbyggingu hver á sínu áherslusviði, sem nýtast skuli fjórðungnum öllum. Þetta verði gert meðal annars með því að við miðstöðvarnar sé starfsmaður í hálfu starfi sem sinni hinu skilgreinda sviði, auk þess sem staðið sé fyrir skilgreindum list-/menningarviðburðum á sérsviði hverrar miðstöðvar.





Skrifa athugasemd