Létt 96,7 á Skjávarpi
Áhorfendur upplýsinga- og auglýsingamiðilsins Skjávarps hafa undanfarið tekið eftir því að útvarpsstöðin Létt 96,7 hefur hljómað sem bakgrunnstónlist á sjónvarpsrásinni. Nú hljóma þar jólalögin eins og þau gerast best. Útvarpsstöðin Létt 96,7 eins og nafnið bendir til, spilar létta og notalega tónlist fyrir hlustendur. Víða þar sem SkjáVarpsskjáir eru í verslunum og þjónustufyrirtækjum á Höfn er útvarpsrásin látin hljóma frá SkjáVarpstækjunum fyrir gesti og gangandi. Eins hefur heyrst að sjónvarpstækið í stofunni m.a. stillt á SkjáVarp til að njóta notalegarar tónlistar Létt 96,7 og koma sér jólaskapið.
Dagskrá útvarpsstöðvarinnar er að í morgunsárið er það Sigga Lund sem skapar ljúfa og notalega stemmingu til kl.14 með hugljúfri tónlist og vel völdum fréttamolum. Eftir kl.14 tekur Ásgeir Ólafs við og fylgir hlustendum til kl. 16. Hann býr yfir miklum fróðleik um hina ýmsu tónlistamenn sem hann deilir með hlustendum í bland við uppáhaldstónlistina þína. Hermundur Rósinkranz - talnaspekingur og miðill fylgir hlustendum Létt 96,7 inn í dularfullan og áhugaverðan heim. Þátturinn hans heitir 7-9-13 og gefst hlustendum þar kostur á að hringja í hljóðstofu og njóta dulúðar öll fimmtudagskvöld.





Skrifa athugasemd