Heilbrigðisstofnun hvetur til bólusetningar við hettusótt
Heilbrigðisstofnun Suð-austurlands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem einstaklingar fæddir árið 1981-1986 hvattir til að mæta í bólusetningu fyrir hettusótt á heilsugæslustöðina á Höfn. Þessi tilkynning er send samkvæmt tilmælum frá landlæknisembætti Íslands. Gripið er til þessarar bólusetningar núnar þar sem það virðist ljóst að hettusóttarfaraldurinn er ekki í rénun eins og reiknað var með. Í ljósi þess að einstaklingar á þessum aldri eru að fá hettusóttina þá eru gripið þess að bólusetja þennan aldursflokk. Tímapantanir í bólusetningu á heilsugæslustöð Hornafjarðar er í síma 478-1400. Bólusetningin er einstaklingum að kostnaðarlausu.
Að sögn Esterar Þorvaldsdóttur hjúkrunardeildarstjóra heilsugæslustöðvarinnar þá er bólusetningin við hettusótt einföld og ekkert að óttast.




Skrifa athugasemd