Hlaut styrk til verkefnisins "Spa Vatnajökull"
Fréttatilkynning um styrkveitingu frá Frumkvöðlastuðningi IMPRU
Nýlega hlaut Stella Sigfúsdóttir hjá Spa Akademíu ehf./Spa Academia Ltd. styrk frá Frumkvöðlastuðningi IMPRU nýsköpunarmiðstöð, til verkefnisins "Spa Vatnajökull." Styrkinn mun Stella nýta til þess að gera forrannsókn á fýsileika þess, að stofna heilsulind Spa Vatnajökul - í ríki Vatnajökuls. Nú er unnið að viðamiklum verkefnum og rannsóknum í sjálfbærri ferðaþjónustu, ásamt áætlunum um framtíðarþróun í og við væntanlegan Vatnajökulsþjóðgarð. Stella hefur meistaragráðu, MBA, í alþjóðlegri hótel- og ferðaþjónustu frá Bandaríkjunum, með stofnun og rekstur heilsulinda (spas), sem sérsvið. Hún er einnig viðskiptafræðingur af markaðssviði frá Háskóla Íslands. Spa Akademía ehf. er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki í heilsutengdri þjónustu (spa iðnaði) og er Stella Sigfúsdóttir stofnandi og stjórnarformaður.
Sem stendur starfar Stella auk þess sem verkefnis- og fjármálastjóri, í tímabundnu ferðaþjónustuverkefni, hjá Háskóla Íslands, Hornafjarðarsetri. Verkefnið sem hún er í forsvari fyrir er svonefnt NEST verkefni (Northern Environment for Sustainable Tourism), sem útleggst á íslensku sem "þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á Norðurslóðum" og er styrkt, að stórum hluta, af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins.
Stella mun, eins og kostur er, vinna verkefnið í náinni samvinnu við ferðaþjónustuaðila á svæðinu, sveitarfélag Hornafjarðar, sveitarfélag Skaftárhrepps og Háskólasetrið á Hornafirði. Ef fýsilegt reynist að reisa slíka heilsulind, þá hyggst Stella sækja um áframhaldandi styrki til ýmissa stofnana og aðila til þeirrar þróunarvinnu.
Þess má geta að Stella hefur um árabil átt sæti í stjórn bandaríska spa sambandsins, DSA, og meðal annars átt sæti í rannsóknar- og fræðslunefndum þess. Þar hefur hún starfað með mörgu af því fólki sem er fremst á sviði heilsulinda og heilsuhótela í heiminum. Stella hefur meðal annars rekið Spa Akademíu í tæp sex ár, bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi. Spa Akademía býður meðal annars upp á ráðgjöf varðandi stofnun og rekstur heilsulinda, og starfsþjálfunarnámskeið fyrir starfsfólk heilsulinda. Árið 1991 gerði Stella fyrstu tölfræðilega marktæku rannsóknina á áhrifum af böðun í Bláa lóninu og kostnaðarútreikninga við að reisa þar heilsulind. Rannsóknin var unnin sem kandídatsritgerð við Háskóla Íslands undir leiðsögn dr. Brynjólfs Sigurðssonar og var styrkt af heilbrigðisráðuneytinu og Bláa lóns nefnd Alþingis. Þá gerði hún fjölþjóðarannsókn á mikilvægustu þjónustuþáttum fólks við val á svonefndum loftslagsmeðferðum og var sú rannsókn unnin sem meistararitgerð í alþjóðlega hótel- og ferðaþjónustu náminu í Bandaríkjunum. Sú rannsókn var valin sem verðlaunaritgerð í samkeppni meistara- og doktorsritgerða, í nýjungum í rannsóknum í hótel- og ferðaþjónustu í Bandaríkjunum og var kynnt á fjölþjóðaráðstefnu í Las Vegas.
Stella starfaði einnig sem aðstoðarprófessor við Johnson & Wales University, í Providence, Rhode Island, og hefur ritað fjölda greina um rekstur og þjónustu heilsulinda og fleira.
Áætlað er að verkáætlun fyrir verkefnið "Spa Vatnajökull" liggi fyrir kringum áramótin og að forrannsókninni ljúki vorið 2006. Reynist niðurstöður jákvæðar, þá mun strax ráðist í að setja saman viðskiptaáætlun og leitað eftir fjármagni, til þess að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. Stella mun einnig leita eftir samvinnu við fagaðila á svæðinu og aðra hagsmunaaðila um stofnun "Spa Vatnajökuls."
Háskólasetrinu á Hornafirði HÁ-HORNi, 14. desember 2005




Skrifa athugasemd