Desember
Miðbær
Miðbær
Miðbær, verslunar og þjónustumiðstöð við Litlubrú

15.12.2005 Desember

KHB kaupir þrjár af fasteignum Skálatinda

Eignarhaldsfélagið Skálatindar á Hornafirði hafa gert samning við Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum um kaup KHB á þrem fasteignum Skálatinda sem eru verslunarhúsið Miðbær við Litlubrú, Vöruhúsið Hafnarbraut 30 (Jöklasafnið) og Verslunarhúsið Vesturbraut 3 þar sem verslunin Krónan er til húsa. Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri KASK segir að kaupsamningar verði undirritaði einhvern næsta dag. Hann segir nýju eigendurna taka við leigusamningum við alla rekstraraðila sem eru með fyrirtæki í þessum húsum en þar eru nokkrar verslanir, þjónustufyrirtæki, skólaaðstaða og Jöklasafnið.

Uppsagnar frestur leigusamnings 11 11 og Krónunnar eru 12 mánuðir. Pálmi á von á að þegar fram líða stundir verði breyting á rekstri matvöruverslana hér á staðnum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica