3600 hænur drápust þegar eldur kom upp í hænsnabúinu í Grænahrauni
Slökkvilið Hornafjarðar var kallað út kl. 14.00 í dag vegna elds í hænsnahúsi á Grænahrauni í Nesjum. Að sögn Steinþórs Hafsteinssonar slökkviliðsstjóra var mikill reykur og eldur í húsinu, vel gekk að slökkva eldinn og var því lokið á rúmum hálftíma. Húsið verður vaktað fram eftir kvöldi. Í húsinu voru um 3600 hænur sem allar drápust og er hænsnahúsið mikið skemmt. Grænahraunsbúið er stærsti eggjaframleiðandi á svæðinu suðaustanlands og er tjón bændanna mikið þó búið sé vátryggt. Ekki er vitað um eldsupptök.
Starfsmenn Grænahraunsbúsins voru staddir á bænum Sauðanesi sem er skammt frá Grænahrauni þegar eldurinn kom upp en þar voru þeir að undirbúa pláss fyrir 14-1500 unga sem von er á með flutningabíl í kvöld.





Skrifa athugasemd