Desember
Birna Aðalsteins að skoða grænmetið hjá Finndísi í Dilksnesi
Birna Aðalsteins að skoða grænmetið hjá Finndísi í Dilksnesi
Birna Aðalsteins að skoða grænmetið hjá Finndísi í Dilksnesi á markaðstorginu í Hornabæ (úr myndasafni)

08.12.2005 Desember

Jólamarkaður Markaðstorgs Hornafjarðar.

Eins og bæjarbúar flestir vita missti Markaðstorg Hornafjarðar húsnæðið þegar sælgætisverksmiðjan Freyja keypti Hornabæ núna í haust. Það hefur hins vegar verið mikill áhugi fyrir jólamarkaði og margir komið að tali við forsvarsmenn Markaðstorgsins þar að lútandi. Því var ákveðið að slá til og halda, í samvinnu við Miðbæ, markað laugard.10.des frá kl. 11- 16. Alls hafa um 16 sölumenn tilkynnt þátttöku svo ljóst er að úrvalið verður mikið. Á boðstólnum verður matvara af ýmsu tagi, Sævar og Reynir mæta með jólasteikurnar, svínakjöt,endur og fasana. Bestfiskur sér um fiskinn og Álarannsóknafélaga Hornafjarðar verður með reyktan ál á boðstólnum. Konurnar í Kvenfélaginu Ósk úr Suðursveit sem þekktar eru fyrir skörungsskap mæta með brauð og kökur og Halabændur með lax og silung.

Þá verða til sölu listmunir úr leir, tré og gleri, Jón og Ágústína mæta með eldvarnir, dagatal kvennakórsins og fleira, handavinnan verður á sínum stað, tombóla og listaverkauppboð svo eitthvað sé nefnt.

Lúðrasveitin kemur og spilar fyrir okkur jólalögin kl. 14:00 í Miðbæog. Að sjálfsögðu verða allar verslanir í Miðbæ opnar og Jón bakari með rjúkandi heitt kaffi og meðlæti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica