Efnalaug Dóru opnar jólamarkað í Orkuvershúsinu
Efnalaug Dóru hefur nú opnað jólamarkað í Orkuvershúsinu og er þetta í fyrsta skipti sem það er gert á vegum fyrirtækisins. Að sögn Halldóru Ingólfsdóttir (Dóru) þá verður á markaðnum mikið úrval af rúmfötum, handklæðum, dúkum nærfötum og náttfötum, blússum og bolum ásamt barnafatnaði, húfum vettlingum og sokkum á alla fjölskylduna. Einnig er fyrirtækið með útivistarfatnað frá Regatta. Dóra segir að jólavertíðin sé hafin hjá þeim í sölu og svo er stærsti mánuðurinn í hreinsun í efnalauginni. Að sögn Dóru þá hefur það aukist að fólk kemur með gardínur og mottur sem það vill láta hreinsa fyrir jólin og eru flestir farnir að gera sér grein fyrir því að það borgar sig að gera það tímanlega. Hjá Verslun og Efnalaug Dóru vinna nú 4 starfsmenn.
Jólamarkaðurinn stendur fram yfir jól og er opin virka daga frá kl. 9-18 og 13-16 laugardaga.





Skrifa athugasemd