Desember
Ranhildur og Gudný
Ranhildur og Gudný
Ragnhildur Magnúsdóttir og Guðný Jensdóttir við gamla röntkentækið

06.12.2005 Desember

5,2 milljónir hafa safnast til kaupa á röntgentækjum

Eins og áður hefur komið fram eru fyrirhuguð kaup á stafrænum röntgentækjum fyrir Heilbrigðisstofnun suðausturlands sem kosta um 11 milljónir. Fjársöfnun er hafin og hafa nú þegar safnast 5.250.000.- þar af 5 milljónir frá einstaklingum! Næstu daga verða send út bréf til fyrirtækja í sveitarfélaginu með beiðni um styrk. Núverandi röntgentæki á Heilsugæslustöðinni eru frá árinu 1983 og löngu orðin úrelt og ekki hægt að gera við þau lengur. Þau eru óáreiðanleg í rekstri og erfitt að fá röntgengreiningu með þeim. Þar sem ekki er til fjárveiting til svona tækjakaupa stóla stjórnendur HSSA á að geta safnað fyrir tækjunum.

Þeir einstaklingar og fyrirtæki sem vilja leggja málinu lið er bent á söfnunarreikning sem er í Sparisjóð Hornafjarðar og nágrennis (1147- 05- 401400 kt: 550185-0329)

Leggjumst öll á eitt og tryggjum betri þjónustu í heimabyggð!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica