Í jöklanna skjóli, heimildakvikmynd um horfna lifnaðarhætti í Skaftafellssýslum.
Þjóðminjasafn Íslands sýnir, í samstarfi við Kvikmyndasjóð Skaftfellinga heimildakvikmyndina Í jöklanna skjóli sem Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari tók á árunum 1952-1954 í Skaftafellssýslum. Skýringartexta samdi Jón Aðalsteinn Jónsson og er hann jafnframt flytjandi textans. Kvikmyndin er í all mörgum þáttum og hafa alls sex þættir verið sýndir að undanförnu. Síðasti hluti kvikmyndarinnar verður sýndur fimmtudaginn 1. desember. Þá verða þessir þættir á dagskrá: Kolagerð, Meltekja , Úr Mýrdal í Lón. Kvikmyndin er sýnd í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu og hefst sýningin að þessu sinni kl. 17:15. Kvikmyndasýningin tekur um klukkustund.
Að lokinni kvikmyndasýningu verður safnið opið gestum til kl. 21:00 og ennfremur Kaffistofa og Safnbúð. Sérfræðingur Þjóðminjasafnsins mun leiða gesti um þá hluta grunnsýningar safnsins sem tengist efni kvikmyndarinnar hverju sinni.
Aðsóknin hefur verið mjög góð þau þrjú skipti sem þættir úr kvikmyndinni hafa verið sýndir, raunar hefur verið skipað í hvert sæti og vel það segir Gísli Sverrir Árnason kynningarstjóri og fyrrverandi forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Ég hef haft með undirbúning að gera og brugðið mér í hlutverk bíóstjórans en Ágúst Georgsson, samstarfsmaður minn og sérfræðingur í þjóðháttum, hefur rætt við fólk um efni myndanna og farið í leiðsögn um safnið eftir hverja sýningu. Ég er í góðu sambandi við Skaftfellingafélagið um kynningu á þessari dagskrá og hafa burtfluttir Skaftfellingar sýnt þessu mikinn áhuga. Fyrst voru það aðallega Vestur-Skaftfellingar sem mættu á sýningarnar en núna eru Austur-Skaftfellingar farnir að láta sjá sig meira. Svo koma auðvitað aðrir áhugasamir gestir enda höfðar efni myndanna til allra aldurshópa og þjóðfélagsstétta.





Skrifa athugasemd