Desember
Nýju bolirnir
Nýju bolirnir
Nýju bolirnir

01.12.2005 Desember

Byggjum betra samfélag, skrúðganga um bæinn

Í dag 1. desember ætla nemendur og kennarar í Hafnarskóla í skrúðgöngu í tilefni dagsins og ljúka þar með formlega verkefninu "byggjum betra samfélag". sem skólinn hefur unnið að síðustu vikurnar. Að sögn Eyglóar Illugadóttur aðstoðarskólastjóra í Hafnaraskóla þá lýkur þannig verkefni aldrei þar sem skólinn verður stöðugt að vera vakandi fyrir lýðræði og jafnrétti og gæta þess að mismunun, einelti og annað óæskilegt atferli þrífist ekki meðal okkar. Í dag fá allir í skólanum afhenta boli með merki skólans og einkunnarorðum og skarta honum. Eygló minnir þó á að nauðsynlegt að krakkar komi vel klædd því að lagt verður af stað í gönguna kl. 10:15 og gæti ganga staðið til hádegis.

Foreldrar og aðrir sem tök hafa á eru sérstaklega velkomnir í gönguna með okkur. Skrúðgangan mun stansa og syngja við leikskólana, hjúkrunarheimilið og bæjarskrifstofurnar.

Sjá fleiri fréttir frá Hafnarskóla í fréttabréfi skólans (pdf)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica