Opinn fundur um haf- og fiskirannsóknir
Hafrannsóknastofnunin boðar til opins fundar um haf- og fiskirannsóknir á Hótel Höfn, í kvöld 30. nóvember kl. 20:00. Þar mun Jóhann Sigurjónsson forstjóri flytja erindi ásamt sérfræðingum stofnunarinnar þeim Þorsteini Sigurðssyni, sem talar um ástand uppsjávarfiskistofna, og Guðrúnu Helgadóttur sem ræðir um kortlagningu hafsbotns og búsvæða. Á eftir verða umræður og fyrirspurnum svarað. Fundarstjóri verður Albert Eymundsson. Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafró og starfsmenn stofnunarinnar hafa undanfarið verið á hringferð um landið og haldið fundi þar sem margvísleg málefni hafa verið til umræðu s.s. veiðarfærarannsóknir,árangur í stjórn fiskveiða, fæðuástand nytjastofna,einkum þorsks og hvort loðnuveiðar væru skynsamlegar í því tilliti, hver væri staða sandsílis og ástand fuglastofna t.d. kríu.
Einnig hefur verið rætt skynsamlega nýtingu þorsksstofnsins, veiðarfærarannsóknir og kortlagningar hafsbotnsins.
Fundurinn er öllum opinn og eru Hornfirðingar hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum kvöldsins.





Skrifa athugasemd