Íbúar sveitarfélagsins hvattir til að mæta á borgarafund
Borgarafundur verður haldinn í Nýheimum mánudaginn 28. nóv kl. 20.00. Full ástæða er til að ætla að sá fundur verði vel sóttur af íbúum sveitarfélagsins þar sem aðalfundarefnið er fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Ég á von á að það sem hæst ber þar verði umræða um hvað verði miklar framkvæmndir í sambandi við íþróttamannvirki einkum sundlaugarbyggingu segir Albert Eymundsson bæjarstjóri. Íþróttaframkvæmdirnar eru stóra málið en að öðru leiti er fjárhagsáætlunin hefðbundin. Einnig verður rætt um aðalskipiulagið sem er í endurskoðun þar sem kemur til umfjöllunar álitamál sem verið hafa um vegstæði um Hornafjarðarfljót og eins vegstæði þjóðvegar 1 í Öræfasveit. Undirbúningur fyrir byggingu nýrrar brúar og breytt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót er kominn í fullan gang, Vegagerðin er að móta sínar tillögur og bæjarstjórn er með sínar tillögur og þar sem þær eru ekki þær sömu hjá báðum aðilum þarf að skoða þær og vega og meta hvaða leið verður valin.
Tillögurnar snúast um vegarstæði þar sem farið yrði yfir fljótin, hvort farið verður sunnan við Hrísey og Skógey eða norðan við Hrísey og yfir Skógey. Eystri hluti vegarins verður á svæðinu milli Hafnarnes- og Dilksnesafleggjaranna og hefur Flugmálastjórn staðfest að sú staðsetning vegarins trufli ekki gagnvart flugvellinum.
Albert vill hvetja sem flesta til að mæta á borgarafundinn og hafi fólk einhver mál sem það vill koma á framfæri þá endilega leggja þau fram á fundinum þar sem þau verða rædd.





Skrifa athugasemd