Nóvember
Grjótskemmd
Grjótskemmd
Jón Bjarnason við eina grjótskemmdina sem komið hefur úr skriðunum

23.11.2005 Nóvember

Ber þess víða merki að hann hefur orðið fyrir grjótkasti

Landrover jeppi vegagerðarinnar á Hornafirði sem notaður er í hreinsunarferðir í Hvalnes- og Þvottárskriður ber þess víða merki að hann hefur orðið fyrir grjótkasti og fyrir stuttu kom um 10 cm rifa á vinstri afturhurð bílsins þegar steinn lenti á honum en ökumann sakaði ekki. Starfsmenn vegagerðarinnar þurfa alla daga að fara austur í Hvalnes- og Þvottárskriður til að hreinsa grjót sem hrinur úr skriðunum af veginum þ.e. þjóðvegi 1, og segir Jón Bjarnason þá oft þurfa að fara jafnvel seint á kvöldin og hreinsa veginn svo flutningabílarnir komist þar um. Það er algengt að steinar í fótboltastærð kastist niður á veginn og stundum steinar allt upp í einhver tonn þeir stærstu segir Jón. Það ætti öllum að vera ljóst sú hætta sem starfsmenn vegagerðarinnar eru í við störf sín að halda veginum þarna greiðfærum og oft í snarvitlausum veðrum sem eru algeng á þessu svæði. Það er mikið hagsmunamál, ekki bara fyrir Hornfirðinga heldur alla þá sem þurfa að aka um Hvalnes- og Þvottárskriður að þarna verði komið á öruggu vegasambandi áður en þarna verða stórslys.

Það ætti að vera forgangsverkefni þingmanna bæði í suður og austurlandskjördæmi, hvar í flokki sem þeir standa, að koma þessum málum á stað strax.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica