Skaftafellsjökull hefur styst um 97 frá síðasta ári
Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum hefur í tugi ára fylgst með breytingum á Skaftafells- Svínafells- og Fallsjökli í Öræfum og mælt og fylgst með breytingu jöklana á hverju ári. Frá síðasta ári hefur Skaftafellsjökull styst um 97 metra og er það með meira móti segir Guðlaugur, jökullinn er sléttur og hefur lækkað mikið. Svínafellsjökull hefur styðst um 25 m. það er líka með meira móti. Þar sem ég mæli er niður bratta öldu hefur verið mest lækkun, ekki stytting á jöklinum en hann er núna farinn að verða sléttari og kominn niður ölduna og þá mun hann styttast meira. Falljökull hefur aðeins styst um 9 metra. Það liggur mikil grjótskriða ofan á mestum hluta jökulsins og því eyðist hann lítið. Ég mæli jökulinn fram með skriðunni og þar eyðist hann mikið. Þar sem hann fellur niður og er brattastur eru alltaf að koma í ljós nýir klettar segir Guðlaugur.
Guðlaugur sagðist áður fyrr hafa mælt Virkisáar- og Falljökul saman en Virkisáarjökul hefur í mörg ár verið hulinn skriðu og þar sem ekki er sjáanleg nein breyting hefur hann ekki verið með í árlegum mælingum.




Skrifa athugasemd