Nóvember
ÞRYMSKVIÐA – sýning í Miðbæ
ÞRYMSKVIÐA – sýning í Miðbæ
ÞRYMSKVIÐA – sýning í Miðbæ

18.11.2005 Nóvember

Ákveðið að bæta við tveimur sýningum

Þessa viku hafa verið þemadagar í Heppuskóla. Í skólanum hefur verið mikið líf og fjör þar sem allir hafa fundið eitthvað við sitt hæfi. Þemað að þessu sinni var Þorrinn og Ásatrú og var nemendum skipt upp í átta hópa. Hóparnir unnu að margvíslegum verkefnum tengdum þemanu s.s. Ásatrúarhópur, blóthópur, Þrymskviðuhópur, hópur sem málaði leikmynd við Þrymskviðu, Rúna- og galdrahópur, matarhópur, hópur sem kynnti sér álfa- og vættatrú og hópur sem kynnti sér nútíma ásatrú. Búnar voru til galdrarúnir, steikt flatbrauð, gömlu jólasveinarnir teknir upp á myndband, settur upp langeldur og máluð listaverk af gömlu goðunum svo eitthvað sé nefnt. Hópurinn sem setti upp leikritið Þrymskviðu hefur verið óþreytandi að sýna leikritið enda er það ákaflega skemmtilegt. Hópurinn sýndi fjórum sinnum í gær á degi íslenskrar tungu, á leikskólunum Krakkakoti og Lönguhólum. Sýningarnar mæltust mjög vel fyrir og voru menn sammála um að þessi tenging á milli skólastiga væri mjög jákvæð og æskileg.

Í gær fimmtudag var opið hús í Heppuskóla þar sem afrakstur þemadaganna var sýndur foreldrum og öðrum gestum. Sýningin tókst mjög vel enda hafa nemendur og kennarar lagst á eitt við að gera þessa daga skemmtilega og lærdómsríka. Þrjár sýningar voru á leikritinu Þrymskviðu og komust færri að en vildu. Því var ákveðið að bæta við tveimur sýningum í dag, í Miðbæ kl. 12.00 og í Nýheimum kl. 12.30. Leikritið er að stærstum hluta unnið með spunaaðferðinni þannig að ekkert mælir á móti því að sjá það á báðum stöðum ? engar tvær sýningar eru alveg eins!
Á þemadögum sem þessum fá nemendur og kennarar tækifæri til að prófa sig áfram með nýjar hugmyndir og nota hugmyndaflugið og síðast en ekki síst - hafa það skemmtilegt saman!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica