Nóvember
Sæluhúsakvísl á Skeiðarársandi Okt.2005
Sæluhúsakvísl á Skeiðarársandi Okt.2005
Sæluhúsakvísl á Skeiðarársandi Okt.2005

16.11.2005 Nóvember

Sæluhúsakvísl á Skeiðarársandi

Öll viljum við fækka slysum í umferðinni, ein leið til þess er að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins og sumar brýr eru með öllu óþarfar, segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Á Skeiðarársandi er t.d. einbreið brú yfir Sæluhúsavatn þar sem ekkert vatn rennur undir og hefur ekki gert í 9 ár, brúin hefur því ekkert gildi að mínu mati. Ragnar sendi bréf til Samgönguráðherra og Vegagerðinnnar þann 29. mars 2005, þar sem hann rökstuddi tillögu sína um að fjarlægja mætti brúnna yfir Sæluhúsavatn hið fyrsta. Ekkert jökulvatn hefur komið undir brúna síðan í Skeiðarárhlaupinu 1996 og leysingarvatn af sandinum er mjög lítið. Brúin er mikil slysagildra á þjóðvegi nr.1. þegar ekið er yfir Skeiðarársand frá Núpsvötnum að Skeiðarárbrú um 20 km leið, þá er farið yfir tvíbreiða brú á Sandgígukvísl, síðan er ekið í gegnum einsleitt landslag og á miðri þeirri leið er ekið yfir brúna á Sæluhúsavatni. Alltaf kemur þessi litla brú ( lítil miðað við aðrar brýr á Skeiðarársandi) á óvart þar sem ekki er nokkur vatnsspræna sjáanleg.

Brúin yfir Sæluhúsavatn er 47m löng og kom með öllu óskemmd undan Skeiðarárhlaupinu mikla1996 sem sýnir að þetta er rammgerð og góð brú sem t.d. mætti nýta á einhverri gönguleiðinni þar sem jökulár eru farartálmi s.s.yfir Hólmsá eða Kolgrímu svo eitthverjar séu nefndar
Samgönguráðherra hefur lagt áherslu á að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegi nr.1 enda eru þær miklar slysagildrur og Ragnar segir Skaftafellinga auðvitað fagna þessari stefnuyfirlýsingu ráðherra, enda eru yfir 30 einbreiðar brýr á þjóðvegi nr.1 í Skaftafellssýslum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica