Nóvember
Haustlitaferð í Núpsstaðaskó
Haustlitaferð í Núpsstaðaskó
Haustlitaferð í Núpsstaðaskó
Mynd 1 af 2
1 2

16.11.2005 Nóvember

Haustlitaferð í Núpsstaðaskóg

Dagurinn er 17. september og ferðinni er heitið í Núpsstaðaskóg með Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu. Farið var frá tjaldstæði Hafnar klukkan 8 í blíðskaparveðri, 7°c og logni. Í ferðina fóru 23 ferðalangar á 6 jeppum. Fararstjóri ferðarinnar var Sigurjón Einarsson. Ég (Lilja) og synir mínir 2, Maron og Ægir fengum að fljóta með Rannveigu Einarsdóttur og Magnúsi Jónassyni, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Á móti okkur tók einkar stórbrotið og ægifagurt landslag þegar við keyrðum inn með Lómagnúpi í átt að Núpsstaðaskógi. Það ríkti mikil spenna þegar Maggi fór yfir Núpsvötn, þar var frekar stórgrýtt og gaman að hossast yfir. Fyllt var á orkubirgðirnar með hinum ýmsu kræsingum áður en lagt var í gönguferðina inn í Núpsstaðaskóg.

Gangan var mjög fjölbreytt og skemmtileg, sennilega þess vegna sem Maron 8 ára og Ægir 5 ára höfðu þolinmæði og orku til að labba þessa leið. Mér persónulega fannst gangan ansi glæfraleg á köflum fyrir strákana mína, enda liggur göngustígurinn mest við árfarveginn. En það voru allir boðnir og búnir að aðstoða með drengina og ferðin að Kálfstindi gekk mjög vel. Þangað upp fóru flestir í ferðinni, til að komast alla leið þarf að handstyrkja sig upp keðju sem liggur upp klettavegginn.

Á Kálfstindi blasa við tveir fossar þar sem renna saman bergvatnsá og jökulá ofan í sama hylinn. Heitir hann Tvílitihylur, hylurinn er tær þar sem bergvatnsáin rennur ofan í hann, en grár þar sem jökulvatnið kemur í hann og sjást skilin greinilega. Ég fór ekki upp á Kálfstind í þetta skiptið þar sem ég var ein með strákana, en í næstu ferð verður farið alla leið og hún verður vonandi fyrr en síðar.

Það voru sælir göngugarpar sem skiluðu sér aftur í jeppaflotann, nestið klárað og haldið í smá heimsókn til Filippusar Hannessonar á Núpsstað. Þar var yndislegt að koma og sjá þennan snaggaralega karl sem verður 96 ára 2. desember næst komandi.

Mig hefur oft langað að fara með Ferðafélaginu en ekki látið verða af því fyrr en nú og mæli svo sannarlega með því að prufa það. Ferðin var stórskemmtileg í alla staði og félagsskapurinn alveg meiriháttar ? bara snilld.

Takk kærlega fyrir okkur, Lilja Pálsdóttir, Maron og Ægir.

Sjá myndasafn


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica