Hreindýr stórum hópum
Hreindýrin, sem að venju halda niður í byggð í byrjun vetrar, eru nú í stórum hópum í Lóni Mýrum, Suðursveit og Nesjum. Um helgina voru stórir hreindýrahópar í Lóninu fast við þjóðveginn og fara dýrin í rólegheitum yfir veginn þvert fyrir umferðina og virðast ekkert kippa sér upp við það þó bílar væru að koma og þyrftu að snarhemla fyrir þeim. Ökumenn þurfa að sýna fulla aðgát á þessum slóðum einkum eftir að dimmt er orðið og að sögn lögreglunnar á Höfn hafa undanfarið orðið þrjár ákeyrslur á hreindýr. Í öllum þessum tilfellunum þurfti að aflífa dýrin og þau urðuð og mikið tjón varð á ökutækjum.
Þó ekki sé æskilegt að hafa hreindýrahjörðina, 150-200 dýr, við veginn þá eru þetta óneytanlega tignarlegar skepnur og gaman að skoða þau einkum þegar þau eru svona gæf og róleg og þjóta ekki í burtu.




Skrifa athugasemd