Góðar horfur í kúabúskap
Á síðasta fundi atvinnumálanefndar Hornafjarðar upplýsti Grétar Þorkelsson hjá Búnaðarsambandinu að bjart væri yfir kúabúskap bænda í héraðinu og horfur góðar núna. Greiðslumark í mjólk hefur staðið í stað allra síðustu ár en hefur vaxið um tæplega miljón lítra frá 2002-2003. Mikil eftirspurn er eftir mjólk og nú meiga bændur framleiða mjólk að vild, það er tekið við allri umfram mjólk og þá er greitt fyrir próteinhlutann af mjólkinni. Grétar segir vaxandi vandamál hversu kálfadauði er mikill og að hlutfall nautkálfa er hærra en kvíga. Sala kjöts hefur aukist og er nú vöntun á nautakjöti og gjaldskrá til bænda hefur hækkað. Á Hornafjarðarsvæðinu eru 13 kúabú, sem eru með einhverja framleiðslu að ráði, og af þeim eru sjö bú með 100 þús. mjólkurlítra framleiðslu og meira á ári. Mest er mjólkurframleiðsla á Seljavöllum.
Þá kom fram að meðalverð fyrir sauðfjárafurðir hefur aldrei verið hærri hér í sýslunni og aldrei hefur fleira sauðfé verið slátrað hér. Á fundinum gerði Grétar grein fyrir vinnu sem hefur farið fram varðandi gæðastýringu og málefni Skógeyjar og telur að þau mál sé í föstum og góðum farvegi. Grétar gerði grein fyrir einstaklingsmerkingum á sauðfé sem yfirdýralæknir hefur farið fram á að verði gert. Það veldur aukinni vinnu hjá búfjáreftirlitsmanni sem kostaður er af sveitarfélaginu. Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að kanna þetta nánar hjá yfirdýralækni og Sambandi íslenskra Sveitarfélaga.
Grétar segir að búskapahættir bænda hér á svæðinu séu nánast óbreyttir frá síðasta ári að því undanskyldu að einn bóndi hefur hætti búskap og annar hóf búskap með endur, einhver þúsund, og er hann annar bóndinn á landinu sem er með slíkan búskap.
Aðspurður um sitt starf segir Grétar að það hafi breyst mikið í kjölfar samstarfs við Búnaðarsamband Suðurlands. Hann telur að breytingarnar hafi orðið til góðs og bændur séu almenn sáttir.




Skrifa athugasemd