Lionsklúbburinn gefur tvö hjartastuðtæki
Lionsklúbbur Hornafjarðar afhenti í gærkvöldi tvö hjartastuðtæki sem verða til staðar í Hafnar-sundlaug og Flosalaug í Öræfum. Guðbrandur Jóhannsson lýsti notkun þeirra og sagði það ótvírætt hafa sannað sig hversu góð öryggistæki þetta eru. Samaritan Pad tækin eru sjálfvirk, auðveld í notkun og íslenskt tal leiðbeinir jafnvel óreyndasta notanda gegnum endurlífgunarferilinn. Þetta eru tæki sem hentar að hafa í hvaða farartækjum sem er, á vinnustöðum, íþróttamiðstöðvum, í heimahúsum og nánast hvar sem fólk kemur saman. Hjartastuðtækið greinir ástand hjartans með aðstoð rafskauta sem límd eru á brjóstkassa sjúklingsins og getur greint hjartsláttartruflanir sem kallaðar eru skyndilegt hjartastopp. Ef svo er þá leiðbeinir tækið með tali og táknum gegnum hina einföldu notkun tækisins og gefur stuð sem leiðréttir hjartsláttartruflanir og kemur hjartanu aftur í réttan takt.
Þegar rafstraumur er sendur í gegnum hjartað getur hann komið hjartanu aftur í eðlilegan takt, ef það er gert innan fárra mínúta. Við hverja mínútu sem líður minnka líkur á lifun um 7-10% og eftir 10 mín. eru líkurnar orðnar mjög litlar. Sjálfvirk stuðtæki eru það einföld að hver sem er getur notað þau og ekki er hægt að skaða neinn sjálfvirku hjartastuðtæki.




Skrifa athugasemd