Mikið rætt um nýja sundlaug í tengslum við Landsmót UMFI
Bygging nýrrar sundlaugar eða endurbætur á gömlu sundlauginni er meðal þess sem mikið er rætt hér á Hornafirði þessa dagana og þar sem Landsmót UMFI verður haldið hér 2007 er ekki til setunnar boðið með úrlausn á þessu máli. Friðrik Ingvaldsson formaður æskulýðs-og tómstundaráðs segir að undirbúningsnefnd sé að fara yfir undirbúning og málefni landsmótsins og mun hún skila af sér mjög fljótlega. Einnig er verið að fara yfir þær kostnaðar og hönnunarskýrslur sem fengnar hafa verið frá Hönnun á Reyðarfirði yfir nýbyggingu sundlaugar og endurbóta á gömlu sundlauginni. Það ætti að koma í ljós fljótlega hvaða ákvörðun verður tekin í sundlaugarmálum hér og ég held að almennt séu menn á því að farið verði út í byggingu nýrrar laugar og ég er þeirrar skoðunar að það sé ekkert vit í að fara að byggja upp og endurbæta gömlu laugina segir Friðrik.
Friðrik fór nýlega ásamt fleirum í undirbúningsnefnd UMFI til Víkur og heimsóttu æskulýðs- og tómstundafulltrúa til að sjá og skoða þeirra framkvæmdir þ.m.t. sundlaugina sem nýtur mikilla vinsælda á staðnum og er vel sótt.
Það er mikill kraftur kominn í undirbúning fyrir landsmótið og við munum öll leggja okkur fram um að gera það sem veglegast segir Friðrik. Þetta er uppbygging til framtíðar fyrir íþróttalífið og hefur líka mikil áhrif fyrir uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu og ég held að sú ákvörðun að halda landsmótið hafi verið mjög góð ákvörðun.
Geinargerð Hönnunar á Reyðarfirði vegna byggingar nýrrar sundlaugar og einnig endurbóta á gömlu sundlauginni fylgir hér með (sjá skýrslu pdf) .





Skrifa athugasemd