Nóvember
Ranhildur og Gudný
Ranhildur og Gudný
Ragnhildur Magnúsdóttir og Guðný Jensdóttir við gamla röntkentækið

08.11.2005 Nóvember

Þörf á nýjum röntgentækjum á heilsugæslustöðina

Sveitarfélagið Hornafjörður er eitt afskekktasta læknishérað landsins og því mikilvægt að tækjabúnaður á heilsugæslustöðinni sé eins fullkominn og kostur er. Bæði félög og einstaklingar í sveitarfélaginu hafa á liðnum árum tekið virkan þátt í að kaupa tæki á heilsugæsluna og hjúkrunardeildina. Nú er staðan þannig að röntgentæki og framköllunarvél heilsugæslustöðvarinnar eru orðin að safngripum. Fyrir löngu eru ófáanlegir varahlutir í þau og bilanatíðnin er há. Það kemur sér mjög illa þegar tækin eru biluð þar sem langt er á næsta sjúkrahús og ekki alltaf ferðafært. Ragnhildur Magnúsdóttir héraðslæknir segir að frá því hún kom til starfa hér hafi hún og hennar starfsfólk lent í allskonar vandræðum með þessi tæki, bæði sé erfitt að nota þau, þau bila oft, framköllunarvélin er óáreiðanleg og getur eyðilagt myndir, einnig er tæknilega erfitt að taka góðar myndir og takmarkað hvað við getum myndað hér . Einnig höfum við enga möguleika á að senda myndir til úrlausnar jafnóðum og fá þannig álit sérfræðinga á meðferð segir Ragnhildur.

Sú tækni sem hefur alfarið tekið við er stafræn og eru þannig tæki nú sett upp við endurnýjun á eldri röntgentækjum. Með stafrænum röntgentækjum getur heilsugæslan hér verið beintengd við sérfræðinga í Reykjavík eða á Akureyri og fengið faglega aðstoð strax. Með nýju tækninni er hægt að mynda fleira og betur, geislamagn á sjúklinga og starfsfólk minnkar, auk þess er hún mun auðveldari í notkun fyrir starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar.

Ný stafræn röntgentæki og nauðsynlegur búnaður sem fylgir tækjunum kostar u.m.b. 11 milljónir. Það er ekki víst að við fáum fjárveitingu frá hinu opinbera og það yrði aldrei nema hluti af þessari upphæð, ætlum við því að fara af stað með fjáröflun og sækja í alla sjóði sem við getum segir Ragnhildur, einnig munum við leita til fyrirtækja í sveitarfélaginu og allra hér sem geta og vilja leggja þessu máli lið. Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta er mál sem getur skipt okkur öll miklu og stuðlar að öryggi fólksins sem hér býr. Á næstunni verður opnaður söfnunarreikningur og mun það verða tilkynnt sérstaklega.

Þeir sem vilja kynna sér málið betur geta haft samband við Ragnhildi Magnúsdóttur yfirlækni eða Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur framkvæmdarstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica