Búið að dæla úr Grynnslunum
Nú er lokið við að dæla úr Grynnslunum. Búið er að dæla um 50.000 rúmetrum þannig að dýpi í nýrri rennu er um og yfir 8,5 metrar. Dæluskipið Skandia mun dæla á 3 stöðum í innsiglingarrennunni milli hafnarinnar og Óssins áður en það fer. Framundan er síðan eftirlit með hvernig rennan á Grynnslunum mun standa sig á næstu mánuðum, en dýpið verður reglulega mælt með Birni Lóðs og með hjálp hugbúnaðar og landlíkans er hægt að sjá tilfærslur á efni á botninum. Út frá þessum upplýsingum verður síðan hægt að meta hvernig staðið verður að því að halda nægjanlega djúpri rennu í gegnum Grynnslin. Bráðlega verður farið í að auglýsa útboð við nýja bryggju í Óslandi sunnanverðu, en hún hefur fengið vinnuheitið Bátstangabryggja eftir tanga á svæðinu.
Um er að ræða 40 metra trébryggju á tréstaurum. Efnið í bryggjuna er nú komið á staðinn, en svo illa vildi til að hluti af staurunum fóru í sjóinn þegar þeir voru á leiðinni með skipi frá Evrópu. Unnið er að því að útvega staura í staðinn fyrir þá sem glötuðust og ætti þetta óhapp ekki að hafa áhrif á gang verksins.





Skrifa athugasemd