Hlaut viðurkenningu fjármálaráðuneytisins
Guðmundur V. Friðjónsson sem stundaði meistaranám í viðskiptafræði við Viðskiptaháskólann í Árósum hlaut viðurkenningu fjármálaráðuneytisins fyrir lokaverkefni sitt. Fjármálaráðuneytið hefur um nokkurra ára skeið veitt viðurkenningu vegna lokaverkefnis á meistarastigi í hagfræði eða viðskiptafræði. Viðurkenningarnar í ár eru veittar fyrir verkefni sem unnin eru á skólaárinu 2004/2005. Skilyrði fyrir viðurkenningu er að viðfangsefnið sé á sviði efnahags- eða fjármála tengt hinu opinbera. Veittar eru tvær viðurkenningar í ár, að fjárhæð 250.000 krónur hvor um sig og hlaut Guðmundur aðra þeirra segir á mbl.is. Meistararitgerð Guðmundar V. Friðjónssonar fjallar um hagkvæmni myntsvæða þar sem gerður er samanburður milli landa í því samhengi.
Framsetning ritgerðarinnar er til fyrirmyndar og efnistök skýr. Niðurstöður eru í góðu samræmi við aðferðafræðina og gætt er jafnvægis í ályktunum út frá þeim. Á heildina litið dregur höfundur upp glögga mynd af viðfangsefninu sem varpar ljósi á stöðu Norðurlandanna gagnvart evrópska myntsamstarfinu, EMU.
Þess má geta að Guðmundur varði ritgerð sína í byrjun þessa árs í Árósum og náði þeim einstaka árangri að fá einkunnina 13, sem er hæsta einkunn sem gefin er á dönskum skala. Hann starfar nú sem staðgengill framkvæmdarstjóra hjá Lífeyrissjóði verkfræðinga.





Skrifa athugasemd