Nóvember
Við úthavsins strendur
Við úthavsins strendur
Við úthavsins strendur eftir Árna Joensen

02.11.2005 Nóvember

Við úthavsins strendur

Bókin ,, Við úthavsins strendur´´, eftir færeyska fréttamanninn Árna Joensen, útgefandi er forlagið Gráfell í Færeyjum er komin út. Í bókinni eru frásagnir af slysum sem orðið hafa á Norður-Atlandshafi frá árinu 1975. Þar er m.a. sagt frá því þegar ,,Suðurland´´ fórst á leiðinni frá Reyðarfirði til Murmask, einnig þegar ,,Syneta´´ sigldi á litlu eyjuna Skrúð, eins og Árni orðar það. Síðasti kaflinn í bókinni er um ,,Jökulfell´´ sem sökk á leið til Íslands snemma á þessu ári. Í bókinni er einnig kafli um slys við innsiglinguna til Hornafarðar þegar færeyski handfærabáturinn ,,Guliklettur´´ strandaði á Hleininni við Hvanney og lenti síðan upp í fjöru á Hvanney stuttu innan við flakið af færeyska skipinu Heimdalli sem þar fórst fyrir mörgum árum. Þrem mönnum var bjargað af skipinu en bróðir skipstjórans fórst. Stýrishúsið af Gulakletti er enn á Suðurfjörum skammt vestan við fjöru-bryggjuna.

Þetta er önnur bók Árna um slys í Norðurhöfum. Fyrri bókin, sem kom út í fyrra, er um slys sem urðu á árunum1950 til 1975 og þar er sagt frá fleiri skipum sem fórust við strendur Íslands. Bækurnar eru á færeysku en flestir Íslendingar ættu að geta lesið þær. Þeir sem hafa áhuga að vita meira um þessar merku frásagnir geta haft samband við forlagið á netfanginu grafelli@email.fo


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica