Stofnun sjálfseignarstofnunarinnar Jöklaseturs fer fram í dag
Sjálfseignarstofnunin Jöklasetur verður formlega stofnsett í dag miðvikudaginn 2. nóvember. Stofnfundurinn fer fram í húsnæði Jöklasýningar á Hafnarbrautinni og hefst kl.12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð. Markmið Jöklaseturs eru að stofna og reka ÍS-land, jöklasýningu á Höfn á lifandi og áhugaverðan hátt, s.s. með breytilegum sýningum, fyrirlestrum, námskeiðum o.fl, að bjóða menningartengda ferðaþjónustu með sérhæfingu, að safna saman og miðla fróðleik um jökla, myndun þeirra og mótunaráhrifum m.a. á land, gróðurfar og veður, að safna saman og miðla sögu og menningu sem tengist jöklum og lífi í nábýli þeirra, að hvetja til frekari vísindaiðkana og rannsóknavinnu tengdum jöklum og að vinna í góðum tengslum við aðrar stofnanir og félög sem þessi málefni varða hér á landi og erlendis.
Í september og október hefur verið góð aðsókn á Jöklasýningu. Sýningin var með daglegan opnunartíma út september en í október er opið samkvæmt samkomulagi. Töluvert er um smærri hópa og einstaklinga sem vilja sjá sýninguna. Oft eru það heimamenn sem koma með hópana en einnig eru dæmi um að erlendir ferðamenn óski eftir að sjá sýninguna. Rokksýning Hótels Hafnar og Hornfirska skemmtifélagsins hefur einnig ýtt undir þessa góðu aðsókn.





Skrifa athugasemd