Nóvember
Ferðamálanemar
Ferðamálanemar
Ferðamálfræðinemar í Nýheimum á ferð um héraðið. (@HÞV)

01.11.2005 Nóvember

Ferðamálfræðinemar á ferð um héraðið

Á laugardag og sunnudag komu sóttu nemar í ferðamálafræði við Háskóla Íslands Hornfirðinga heim. Á laugardag komu þeir m.a. við í þjóðgarðinum í Skaftafelli, á Svínafelli og á Brunnhóli. Á sunnudaginn heimsóttu þau Jöklasýninguna og fengu síðan kynningu í Nýheimum á þremur verkefnum sem miða að því að styrkja ferðaþjónustu í héraðinu. Rannveig Ólafsdóttir, sem skipulagði ferðina og hélt utan um hópinn, kynnti þeim NEST verkefnið, en nýverið var haldinn á vegum NEST verkefnisins fjölþjóðlegur vinnufundur í Koli þjóðgarðinum í Finnlandi þar sem mættu samstarfsaðilar verkefnisins frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Skotlandi. Ari Þ. Þorsteinsson fór yfir klasaverkefnið, en nýlega var ferðaþjónustuklasi SA-lands formlega stofnaður og verkefnahópar myndaðir.

Hjalti Þór Vignisson ræddi að lokum um verkefnið Seljum norðurljósin sem nýverið fékk myndarlegan styrk frá ríkisstjórninni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica