Ríki Vatnajökuls - Október
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Örlög jarðstöðvarinnar við Höfn ekki ráðin
      <description>Nú þegar 25 ára sögu jarðstöðvarinnar Skyggnis sem er austan við Úlfarsfell er lokið og hann rifinn niður er spurt hvað verður um varajarðstöðina fyrir hann sem blasir við vegfarendum sem keyra til og frá Höfn, nánar tiltekið í landi Hafnarness. Samkvæmt upplýsingum frá  Evu Magnúsdóttur upplýsingafulltrúa Símans hefur engin ákvörðun verið tekin um framtíð varajarðstöðvarinnar í Hafnarneslandi en sá búnaður hefur ekki verið í notkun í nokkra mánuði. Um árabil fóru millilandasímtöl um gervihnött í gegnum Skyggni, sem var um tíma eina símatengingin frá landinu. Frá 1994 þegar sæsímastrengurinn CANTAT var tekinn í notkun gegndi Skyggnir einkum hlutverki varastöðvar. Nú leysa sæstrengirnir FARICE og CANTAT hvor annan af ef bilun verður, en langan tíma tók að koma á varasambandi um gervihnött í gegnum Skyggni ef CANTAT bilaði.</description>
Samfylkingin á Hornafirði stefnir í bæjarstjórn
      <description>Laugardaginn 29. október ætla félagar í Samfylkingunni á Hornafirði að hittast á Kaffihorninu kl. 15:00 og ræða fyrirhugað framboð sitt í væntanlegum sveitastjórnarkosningum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem fer fram í maí á næsta ári. Gestur fundarins verður Margrét Frímannsdóttir, 1. þingmaður Suðurkjördæmis og formaður þingflokks Samfylkingarinnar.  Að sögn Árna Þorvaldssonar þá hefur stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði stefnir á að bjóða fram sérlista Samfylkingarinnar í næstu sveitastjórnarkosningum og er þessi fundur með Margréti liður í undirbúningi að því framboði.</description>
      <alt>Margrét Frímannsdóttir</alt>
Ferðaþjónustuklasa formlega hleypt af stokkunum
      <description>Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands var formlega hleypt af stokkunum í gær, 26.okt. Athöfnin fór fram á Jöklasýningunni á Höfn að viðstöddum ferðaþjónustuaðilum í Sveitarfélaginu, bæjarstjóra, formanni bæjarstjórnar, Ernu Hauksdóttur framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar og Elvari K. Valsyni klasasérfræðingi frá Impru. Eftir að Ari Þorsteinsson hafði boðið gesti velkomna fór hann yfir helstu atriði við undirbúning Ferðaþjónustuklasans og þar kom fram að fyrir tæpu ári eða 12. nóv. 2004 var haldið málþing á vegum Frumkvöðlaseturs Austurlands, Atvinnumálanefndar Hornafjarðar og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands sem bar yfirskriftina Klasar, samstarf og samkeppni. Markmið þessa málþings var að fá svar við  þeirri spurningu hvort klasa gæti verið dreifikraftur atvinnuþróunar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Á málþingið mættu 40 manns, sem talið er vera góð mæting, og var það mat þeirra sem þarna mættu að klasa væri  gott verkfæri til atvinnusköpunar.</description>
Landbúnaðarráðuneytið styrkir hestamannafélagið
      <description>Mánudaginn 24.okt. skrifuðu Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Albert Eymundsson bæjarstjóri undir samning þar sem Landbúnaðarráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður styrkja hestamannafélagið Hornfirðing til uppbyggingar og rekstrar reiðskemmu. Guðni Ágústsson sagði að mikil nauðsyn væri á byggingu reiðskemmu eða reiðhöll, hvort sem menn vildu nefna það, þetta hefði menningarlegt gildi fyrir sveitarfélagið og stuðlaði að uppbyggingu hestamennsku á svæðinu og nauðsynlegt væri að fjölga slíkum byggingum þar sem engin reiðhöll er á svæðinu frá Skagafirði austur og suður fyrir Hellu.</description>
Góð þátttaka var í kvennafrídeginum á Höfn
      <description>Góð þátttaka var í kvennafrídeginum á Höfn í gær. Landsbankinn, Sparisjóðurinn, Pósthúsið og  nokkrar verslanir lokuðu kl 14.08 en á þessum stöðum eru allir starfsmenn konur. Á öðrum vinnustöðum  var veitt frí eftir því sem hægt var. Safnast var saman á Kaffihorninu en þar varð strax fullt út úr dyrum  einnig hélt hópur kvenna á Hótel Höfn þar sem beið þeirra kaffi, kakó og konfekt í boði hótelsins. Eftir notalega stund á Hótel Höfn var haldið í kröfugöngu þar sem launajafnræðis var krafist. Ingólfur Einarsson á Kaffihorninu sagði að beðið hefði verið um tilboð á kaffi og tertu fyrir nokkrar konur sem ætluðu að koma þar saman og var það auðsótt mál. Ég hafði nú grun um að þær gætu orðið fleiri en nokkrar svo það var nóg til handa þessum 130-140 konum sem komu. Það var bara alltof þröngt hér fyrir allan þennan kvennahóp en þröngt meiga sáttir sitja og þetta gekk allt upp.</description>
Blása í lúðra og halda Klasadag
      <description>Nú ætlum við að blása í lúðra og halda Klasadag miðvikudaginn 26 október 2005 segir Gísli Már Vilhjálmsson athafnamaður. Halda á almenna kynningu á Klösum og hvernig menn hafa notað klasaaðferðafræðina til atvinnusköpunar og hagvaxtar fyrir fyrirtæki og svæði. Elvar Knútur Valsson klasamaður frá Impru heldur erindi um Klasaaðferðafræðina og notkunargildi hennar. Þessi kynningarfundur verður haldin í ráðstefnusal Nýheima og hefst klukkan 14:00 Allir eru velkomnir. Klukkan 15:00 verður haldin fundur með matvælaframleiðendum til sjávar og sveita um myndun á klasa um mat og menningu og kannaður áhugi framleiðanda á þátttöku í matvælasýningu svæðisins Suðausturlands. Allir eru velkomnir. Klukkan 16:00 á að hleypa af stokkunum með formlegum hætti Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands og fer sú athöfn fram á Jöklasýningunni á Höfn. Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar verður gestur fundarins.</description>
      <alt>Gísli Már Vilhjálmsson</alt>
Aflamet á Sigga Bessa
      <description>Aflamet varð á Sigga Bessa SF 97 í gær þegar hann landaði í dag 9,8 t af góðum fiski, mestur hluti aflans var  þorskur.Unnsteinn Þráinsson eigandi bátsins og skipstjóri var að vonum ánægður með aflann sem fékkst í Lónsdýpinu. Við þurftum að fara tvær ferðir, fyrst drógum við 26 línur og fórum með 71/2 tonn í land og sóttum síðan tíu línur sem eftir voru og aflinn þá var 2,3 tonn. Afli línubáta hefur verið mjög góður í allt haust  en minni hjá handfærabátum. Unnsteinn sagði að nú væri komin bræla og ekki sjóveður í bili a.m.k. 
|nl|</description>
Hamra skal járnið meðan það er heitt
      <description>Í kvöld, mánudaginn 24.okt. hafa alþingismennirnir Guðni Ágústsson og Ísólfur Gylfi Pálsson boðað til fundar á Hótel Höfn kl.20.00 um atvinnu- og samgöngumál í Austur-Skaftafellssýslu. Þessir tveir málaflokkar eru vafalítið það sem efst er í huga Hornfirðinga og hvernig sé best hægt að vinna úr þeim málum og því tilvalið að nota tækifærið og ræða við þingmennina. Hvað vegamál í sýslunni varða þá hafa menn stórar áhyggjur af  hvað langt er í úrbætur á vegi og brú yfir Hornafjarðarfljót og ekki síður í Hvalnes og Þvottárskriðum þar sem vegurinn er meira og minna stórhættulegur á hvaða tíma árs sem er og veðravíti mikið á því svæði og Hvalnessvæðinu svo veginum lokast iðulega vegna stórviðra. Starfsmenn Vegagerðarinnar sem manna best þekkja þessar erfiðu aðstæður við skriðurnar segja einu raunhæfu framkvæmdina vera jarðgöng úr Lóni yfir í Álftafjörð sem einnig styttir leiðina talsvert.</description>
      <alt>Guðni Ágústsson</alt>
Strandaði í álnum við Austurfjörurnar
      <description>Flutningaskipið Roko strandaði í álnum við Austurfjörurnar í innsiglingunni til Hornafjarðar í gær sunnudag. Um þrjú korter tók að losa skipið með aðstoð Lóðsins og á eigin vélarafli. Roko er 109 m.langt  og 3955 tonn, skráð á Bahamaeyjum gert út frá Noregi og áhöfn skipsins er rússnesk. Skipið lestar frosna síld. Vignir Júlíusson hafnsögumaður sagði ekkert vandamál að sigla skipinu út og sennilega yrði farið á flóði ef það væri mikið lestað og óhöpp eins og í dag teljast ekki til stór tíðinda og engin hætta á skemmdum.</description>
      <alt>Roko strandaði</alt>
Með miklar og stórar hugmyndir
      <description>Undirbúningur fyrir vaxtasamninginn gengur vel segir Gísli Már Vilhjálmsson og við erum búin að halda tvo vinnufundi. Sameiginlegur fundur með nefndunum á Austurlandi var haldinn á Egilsstöðum sl. mánudag þar sem farið var yfir þær hugmyndir sem fram hafa komið á öllum svæðunum. Menn eru með miklar og stórar hugmyndir sem eru mikið til staðbundnar fyrir hvert svæði fyrir sig, sem er mjög gott, og næst á dagskrá er að forgangsraða þeim hugmyndum sem komnar eru. Hér á okkar svæði eru komnar margar frábærar hugmyndir sem líta vel út og full ástæða er til að þær beri góðan árangur og nú höldum við áfram að vinna í þeim, sortera og leggja áherslur á ákveðna hluti. Þetta eru hugmyndir sem m.a. tengjast sjávarútveginum, humrinum og okkar sérstöku náttúru sem býður upp á ótal möguleika.</description>
Unnið að endurskoðun skólastefnu Hornafjarðar
      <description>Um þessar mundir er unnið að endurskoðun á skólastefnu Hornafjarðar. Sigríður Kristinsdóttir formaður skólanefndar segir að í gangi sé metnaðarfull vinna en eftir skólamálaþingið í febrúar sl. var ákveðið að endurskoða skólastefnuna. Skipaðir hafa verið vinnuhópar sem fjalla um málefni leikskóla, grunnskóla og tónskóla, en þar eiga sæti, kennarar og aðrir starfsmenn, skólanefndarmenn, fulltrúar foreldra og sveitarstjórnarmenn.Vinnuhópar hafa þegar hafið störf og starfsmannafundir verið haldnir. Í næstu viku verður foreldrafundur þar sem leitað verður eftir viðhorfum foreldra og annarra sem láta sig skólamál varða. Segir Sigríður að mikilvægt sé að foreldrar mæti á fundinn, komi þar  skoðunum sínum á framfæri og vera þannig beinir þátttakendur í stefnumótun í skólamálum.</description>
Hornafjarðarflugvöllur fær afhent Fjölfar
      <description>Flugmálastjórn afhenti í morgun starfsmönnum Flugmálastjórnar á Hornafirði Argo fjölfar  sem staðsett skal vera á Hornafjarðarflugvelli. Fjölfar, sem er íslenska heitið á Argo, er eina farartækið sem reynst hefur fært um að  komast um leirurnar og fjörðinn við syðri enda flugbrautarinnar. Fjölfari reyndist vel við prófanir á þessu svæði sem reynst hefur ófært öllum öðrum farartækjum sem reynd hafa verið þar. Argo fjölfar á beltum fór án erfiðleika yfir leirurnar,blautar sem og þurrar  eins yfir þau svæði sem eru mjög erfið og jafnvel ekki eru fær  fyrir fótgangandi. Það er því mikið öryggi að hafa slíkt farartæki á staðnum ef slys yrði eða einhverra hluta vegna þyrfti að koma fólki til hjálpar á þessu svæði. Prófanir á tækinu hafa farið fram á Skálafellsjökli, Þórsmörk og mörgum fl.stöðumafhent við margskonar aðstæður og eru menn ánægðir með útkomu þeirra.</description>
      <alt>Argo fjölfar</alt>
Reykingabannið jákvætt hjá matargestum
      <description>Kaffihornið á Höfn hefur verið reyklaus staður síðan 1.júní sl. og segir eigandinn Ingólfur Einarsson að hann og starfsfólk hans séu mjög ánægð með það og andrúmsloftið svo mikið betra. Þetta hefur gengið mjög vel, það er helst á kvöldin og nóttunni að smá mál verða því auðvitað eru ekki allir ánægðir með þetta segir Ingólfur, kvöld og næturtraffíkin hefur heldur minnkað út af þessu. Upp til hópa er reykingabannið jákvætt hjá matargestum en stundum dálítið erfitt gagnvart kaffigestum sem margir vilja fá sér sígarettu með kaffinu og við höfum misst nokkra úr þeim hóp.  Sumarið hjá okkur er búið að vera mjög gott og ég hef trú á að við fáum aukningu í matargestum ekki síst með okkar vinsæla helgarmatseðli. Við fáum oft að heyra álit beggja hópanna með eða án reyks, og tökum eftir að yngra fólkið er mun jákvæðara með reykingabannið en það eldra og það furðulega er að konur eru oft mun erfiðari við að eiga en karlar með að hlíta reykingabanninu.</description>
      <alt>Ingólfur Einarsson</alt>
Brugðu sér til Reykjavíkur á glerlistanámskeið
      <description>Tvær Hornfirskar húsmæður brugðu sér til Reykjavíkur á dögunum á glerlistanámskeið hjá Svanhvíti Kristjánsdóttur glerlistakonu (Svönu hans Gutta), Hornfirðingi til margra ára. Þetta eru tveggja daga námskeið þrjá tíma á dag. Byrjað er á að velja mót fyrir það sem gera skal og síðan farið í glerskurðinn og þegar búið er að móta glerið er það málað eða skreytt eftir því sem hver vill eða haft ólitað og að því loknu tekur brennslan í ofninum einn sólarhring.
|nl|Svana er með mikið og fjölbreytt úrval fallegra glermuna eins og Hornfirðingar fengu að sjá á sýningu þeirra hjóna í Pakkhúsinu í vor og má t.d. nefna borðbúnað, kertastjaka, skálar, veggmyndir, krossa og ótal margt fleira.  Þetta er eins auðvelt og hægt er að hugsa sér , sagði önnur konan sem sótti námskeiðið, þetta geta allir og þetta er óskaplega skemmtilegt verkefni svo er Svana mjög góður og skemmtilegur leiðbeinandi og hefur þolinmæði út í það óendanlega.</description>
Leitað að leikurum til að klæðast búningi Napoleons
      <description>Kvikmyndafyrirtækið Pegasus auglýsir nú á Höfn eftir karlmönnum til að leika í auglýsingu fyrir franska sjónvarpið. Leikararnir þurfa að vera á aldrinum 30-50 ára og munu þeir klæðast búningi Napoleons sem birtist í margfaldri útgáfu í frönsku auglýsingunni. Pegasus leitaði til Leikfélags Hornafjarðar til að aðstoða við leitina enda ekki í fyrsta skipti sem leikfélagið tekur að sér að útvega leikara fyrir kvikmyndir og auglýsingar hér á staðnum. Magnús J. Magnússon  formaður leikfélagsins sagði að það væri að færast í vöxt að leitað sé til leikfélagsins með slík verkefni en það stærsta hafi verið á síðast ári þegar leikfélagið aðstoðaði við að fá leikara í Bjólfskviðu sem sýnd verður hér á landi í haust. Þeir karlmenn sem hafa áhuga á að leika í þessari auglýsingu eru beðnir um að koma í húsnæði leikfélagsins á Fiskhól í kvöld kl.20:30 til skrafs og ráðagerða.</description>
Flóðið sjatnað og allar götur komnar í lag
      <description>Lífið og tilveran á Höfn er komin í sinn venjulega farveg, flóðið sjatnað og allar götur komnar í lag. Úrkoma minnkaði mikið eftir því sem leið á gærkvöldið og minnti veðrið mest á vorblíðu og um leið og fór að draga úr rigningunni minnkaði vatnsflóðið fljótt Eftir er þó mikil vinna fyrir bæjarstarfsmenn að hreinsa til í bænum og  skoða það tjón sem þetta mikla vatnsveður  hefur valdið. Ljóst er að víða hefur orðið tjón í húsum og mikil vinna fyrir húseigendur að þurrka og hreinsa. Þó vatnsflóðin hafi verið mörgum áhyggjuefni eru aðrir sem munu minnast þeirra sem  bara nokkuð skemmtilegrar tilbreytni í tilverunni t.d. að geta siglt um götur miðbæjarins  og  margir höfðu gaman af að aka þar á bílum sínum svo ekki sé minnst á krakkana sem kunnu vel að meta þetta allt og sumir fengu sér sundsprett.</description>
Mikil hætta er á fleiri aurskriðum meðan rignir
      <description>Vegurinn um Hvalnes og Þvottárskriður rofnaði í gærkvöldi.  Aur-og grjótskriður komu á veginn á þrem stöðum og vestan við gilið í Þvottárskriðum fór stórt stykki úr veginum  niður í sjó. Vegagerðarmenn frá Höfn hafa unnið að viðgerð á veginum og sagði Reynir Gunnarsson að hugsanlega yrði hægt að komast þar yfir seinna í dag en hann vill beina þeim tilmælum til fólks að það sé ekki að reyna að fara um skriðurnar nema nauðsynlegt sé því mikil hætta er á fleiri aurskriðum meðan rignir. Flætt hefur yfir veginn á Fjarðaraurum í Lóni og smá skriða kom úr fjallinu austan við Almannaskarð og hún náði niður á veginn.</description>
Víða hefur flætt inn í kjallara húsa
      <description>Mikill vatnselgur er núna um allar götur á Höfn og víða hefur flætt inn í kjallara húsa. Rignt hefur látlaust síðan í gærmorgun og mældist sólarhringsúrkoma í Akurnesi 149mm. Bæjarstarfsmenn hafa staðið í ströngu við að dæla burt vatni úr og frá húsum því fráveitukerfið hefur ekki undan. Í húsi við Höfðaveg stóðu húseigendur í vatnsdælingu úr eldhúsi og þvottahúsi í alla nótt og höfðu vart undan.  Við Víkurbraut er sem hafsjór yfir að líta og þar er hætta á að símatengikassi  fari í kaf en reynt verður að dæla vatni þar frá. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að allar tiltækar dælur séu komnar í notkun og reynt verði eftir því sem hægt er að aðstoða með dælingu. Helgi vill biðja húseigendur að hafa sérstakan vara á um og eftir háflóð sem verður í dag kl.15:30  þar sem hætta er á að flæði inn og færa verðmæti á örugga staði.</description>
Brjálað veður í Öræfum
      <description>Hér er brjálað veður og búið að loka veginum um sveitina sagði Jónína starfsmaður í Freysnesi í Öræfum núna um kl 13.30. Skólabörnin eru veðurteppt á Hofi og verða flutt til síns heima í dag með Drekanum. Bensínstöðinni í Freysnesi er lokuð meðan óveðrið gengur yfir og er þeim sem kynnu að koma þangað bent á að koma heim á hótelið. Tveir mjólkurbílar voru á ferð í Öræfum og er annar í Freysnesi en hinn komst í Hof.  Jónína veit ekki til að orðið hafi tjón á bílum eða öðru í Öræfum enda Öræfingar vanir að takast á við svona venjuleg stórviðri á þeirra mælikvarða og ganga frá híbýlum sínum samkvæmt því. Vindhraðinn mældist núna 42 m. en veðrið á að lægja þegar líður á daginn  og er spáin í dag austan 18-23 m/s og talsverð rigning. Suðaustan 10-15 síðdegis. Hiti 0 til 5 stig, en 5 til 10 undir kvöld.</description>
Kvikmyndasýningar að nýju í Sindrabíó
      <description>Næstkomandi sunnudagskvöld kl.20 hefjast kvikmyndasýningar að nýju í Sindrabæ og er það kvikmyndin um ofurmennin fjögur "Fantastic Four" sem verður þá sýnd. Að sögn Gunnars Inga Valgeirssonar rekstraraðila Sindrabíós þá er búið að gera upp kvikmyndasalinn og er þetta fyrsta kvikmyndin sem sýnd er eftir breytingar. Gunnar Ingi vildi taka fram að þær myndir sem eru sýndar í Sindrabíó eru ótextaðar þar sem búið er að taka í gagnið nýja tækni hér á landi til að sýna texta með kvikmyndum en því miður hefur ekki enn verið ráðist í þá fjárfestingu í Sindrabæ en stendur vonandi til bóta innan tíðar. Í Sindrabíó eru 58 sæti fyrir bíógesti.</description>
Byggingaframkvæmdir og lóðaúthlutanir í Sveitarfélaginu
      <description>Á þessu ári hafa verið nokkrar byggingaframkvæmdir í Hornafirði, lokið var við byggingu íbúðarhúsa á Hvalnesi og Bæ í Lóni og byrjað á byggingu íbúðarhúss í Firði í Lóni. Á Seljavöllum í Nesjum var byggt stórt fjós, verið að ljúka byggingu gisti-og íbúðarhúss á Árbæ á Mýrum, unnið við viðbyggingu og breytingar á Þórbergssetri á Hala og væntanlega verður byrjað á sumarhúsi í Svínafelli í Öræfum. Á Höfn er Íslandspóstur að undirbúa byggingu 300 ferm. húss á Shell-lóðinni við Hafnarbraut. Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi segir okkur hér á Hornafirði enn búa við þau sérréttindi að þurfa ekki að greiða stórfé bara fyrir lóðirnar áður en nokkuð er gert, hér kosta þær ekki krónu menn fá þær eins og þær eru, greiða byggingarleyfi og sjá svo um sinn grunn sjálfir. Hákon segir að nokkuð sé til að lóðum sem eru tilbúnar úthlutunar bæði á Höfn og í Nesjum. Þetta eru lóðir fyrir íbúðarhús, fjölbýlishús, iðnaðarhúsnæði, þjónustu og verslunarhús og einnig eru lóðir fyrir hesthús og fjárhúsabyggð.</description>
Tók forskot á kólesterólmælinguna
      <description>Í dag miðvikudaginn 12. október stendur Hornfirðingum til boða að koma á heilsugæslustöðina frá kl. 11 til 15 og þiggja ókeypis blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu í boði Félags hjartasjúklinga á Hornafirði, Hjartaheillar, lyfjafyrirtækisins Astra Zeneca og heilsugæslustöðvar Hornafjarðar. Í gær tók Ari Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands forskot á blóðfitu- og blóðþrýstingsmælinguna þegar hann mætti upp á heilsugæslustöð þar sem Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur tók á móti honum og veitt honum ókeypis blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu. Ari segir þetta mjög lítið mál og ekki spurning að Hornfirðingar ættu að nýta sér þetta frábæra tækifæri.</description>
Hljómsveitin Sign ásamt Modis í Sindrabæ
      <description>Hljómsveitin Sign spilar í Sindrabæ ásamt Modis, fimmtudaginn 13. október. Hljómsveitin Sign hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn “Thank God for Silence”. Sign skipa Zólberg sem sér um söng og gítar, Addi G. á gítar, Silli á bassa og Egill Örn á trommur. Sign hefur unnið að gerð nýjustu plötu sinnar með hléum í tvö ár en sl. sumar barst þeim liðstyrkur þegar hljóðupptökustjórinn Mark Plati frá New York kom til að vinna að þriggja laga kynningardiski með þeim. Mark hefur unnið með fjölda listamanna allt frá Prince til Phillip Glasser, David Bowie, Bee Gees, Al Green, Nina Hagen, New Order og Suzanne Vega svo fáeinir séu nefndir. Mark tók vin sinn og gítaristann Earl Slick með sér, en Slick er að margra mati goðsögn í lifanda lífi og hefur meðal annars unnið með David Bowie í yfir 20 ár og spilaði inn á Milk & Honey með John Lennon.</description>
      <alt>Sign</alt>
Fjarðaballsferðin endaði í Oddskarði
      <description>Hið árlega Fjarðaball grunnskólanna á Austurlandi var haldið í Egilsbúð í Neskaupsstað sl. föstudagskvöld. Á vegum félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar fóru 35 ungmenni úr 10. bekk í ferðina ásamt tveimur fararstjórum. Lagt var upp frá Höfn kl.18:00 og gekk allt ljómandi vel þar til komið var upp í Oddskarð en þá fór að slydda sem gerði það að verkum að bílstjóri áætlunarbílsins ákvað að snúa við en í þeirri aðgerð lenti bíllinn utan vegar með afturhjólin og komst ekki aftur upp á veg að eigin rammleik, varð því að kalla  eftir aðstoð frá Vegagerð ríkisins. Á meðan beðið var eftir aðstoðinni voru ungmennin selflutt úr áætlunarbílnum niður á Eskifjörð en þar fengu þau athvarf og hressingu í grunnskólanum.</description>
Þarf að afgreiða allt að 300 bretti á sólarhring
      <description>Vörubrettaframleiðsla Olgeir Jóhannessonar á Höfn hefur vaxið og dafnað vel frá því hann byrjaði að smíða vörubretti árið 2002. Fyrsta árið var framleiðslan átta þúsund bretti, síðast liðið ár fimmtán þúsund og í ár um sautján þúsund. Þegar Netagerðin flutti í Ósland keypti Olgeir ásamt fleirum húsið sem hún var í við Álaugarveg og segir hann að með því plássi hafi gjörbreyst öll aðstaða. Þetta er allt annað líf og enn betra nú þegar ég er búin að fá þessa nýju vél sem tekur við brettunum og staflar þeim þegar ég er búinn að setja þau saman. Efni í brettin flytur Olgeir inn frá Rússlandi niðursöguð í passlegar lengdir og það tekur hann um eina og hálfa mínútu að setja hvert bretti saman. Brettin eru notuð undir loðnu, síld, humar, saltfisk og ýmsar fleiri framleiðsluvörur sem unnar eru á Hornafirði. Þegar loðnuvertíð er komin í fullan gang þarf Olgeir að afgreiða allt að 300 bretti á sólarhring og 250 þegar síldarvinnsla er á fullu. Hann er nýbúinn að gera samning um sölu bretta til laxeldisins á Djúpavogi þar sem laxaslátrun er að byrja og á hann von á að með því geti orðið hátt í helmingsaukning  á framleiðslunni.</description>
      <alt>Olgeir Jóhannesson</alt>
Gospelnámskeið á Höfn
      <description>Gospeltónlist nýtur sífellt meiri vinsælda. Það á við um geisladiska og einnig hafa margir mikið gaman af því að syngja þessa tegund tónlistar. Óskar Einarsson, tónlistarmaður hefur verið leiðandi í gospeltónlist á Íslandi síðustu ár, hann er tónlistarstjóri Fíladelfíu og stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur. Hann hefur stúderað gospeltónlist í fjölda ára en hann er með meistarapróf í útsetningum og tónsmíðum frá University of Miami í Bandaríkjunum. Óskar hefur ferðast um landið og haldið gospelnámskeið með kirkjukórum og öðrum áhugafólki. Þessi námskeið hafa verið feykivinsæl og mikil eftirspurn. Hann kemur hingað  helgina 18.-20. nóvember ásamt aðstoðarfólki og heldur námskeið fyrir Hornfirðinga.  Það verður sungið alla helgina og afraksturinn fluttur á tónleikum á sunnudagskvöldinu. Námskeiðið verður haldið á Hótel Höfn, byrjar á föstudagskvöldinu, svo verður sungið allan laugardaginn og hluta sunndags.</description>
Búið að opna afurðasöluna í Sláturhúsinu
      <description>Þá er komið að sláturgerðinni þetta haustið. Búið er að opna afurðasöluna í Sláturhúsi Norðlenska á Höfn og er hún í umsjá Unnar Guðmundsdóttur. Verð á heilum slátrum er 701 kr. og fylgja fjórir keppir (gervikeppir) með. Þeir sem vilja fá glænýtt kinda eða lambakjöt í frystikistuna geta fengið heila skrokka á 770 kr. kg. og eins niðursagað kjöt eftir óskum hvers og eins. Unnur segir að ekki sé möguleiki á að fá vambir hér  um slóðir en hugsanlega sé hægt að panta þær frá Norðlenska á Húsavík  eða Akureyri. Búið er að loka fyrir vambasölu hjá sláturseljendum á Kirkjubæjarklaustri og Egilsstöðum svo ekki er margra kosta völ vilji menn endilega fá ekta vambakeppi utan um slátrið. Unnur segir orsökina fyrir þessu vambaleysi  vera vegna reglna ESB um útflutningsleyfi þessara sláturhúsa. Afurðasalan er opin frá 10-17 virka daga til 21.október. Rétt er að benda á að núna er gengið inn í slátursöluna frá bryggjunni.</description>
Álftagerðisbræður með tónleika í Hafnarkirkju.
      <description>Álftagerðisbræður halda tónleika í Hafnarkirkju næsta laugardagskvöld  og eru tónleikarnir hluti af tónleikaferð þeirra félaga um Austurland. Álftagerðisbræður þeir Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir eru allir bornir og barnfæddir Skagfirðingar eins og þeir gerast bestir. Undirleikari þeirra er Stefán R. Gíslason sem er stjórnandi Karlakórsins Heimi í Skagafirði. Að sögn Péturs Álftagerðisbróðurs þá er mikil tilhlökkun hjá þeim félögum að halda tónleikana í Hafnarkirkju en hingað hafa þeir félagar ekki komið saman áður. Pétur kvaðst hins vegar hafa sungið með Karlakórnum Heimi hér í Sveitarfélaginu fyrir um 20 árum síðan. Honum er það minnisstæð ferð og þá sérstaklega fyrir það að hann gisti hjá Sigga á Borg, hreindýraskyttu sem var með frábæra hreindýrasteik í matinn.</description>
      <alt>Álftagerðisbræður</alt>
Ókeypis kólesterólmæling á Heilsugæslustöð í næstu viku
      <description>Næstkomandi miðvikudag verður Hornfirðingum boðin ókeypis kólesterólmæling (blóðfitu) og blóðþrýstingsmæling á heilsugæslustöðinni. Mælingin verður gerð með nýjum mælum, CardioChek, sem reynst hafa vel og hlotið viðurkenningu í Bandaríkjunum. Mælingarnar eru skipulagðar af Félagi hjartasjúklinga á Hornafirði og landssamtökum hjartasjúklinga í samvinnu við heilsugæsluna og lyfjafyrirtækið AstraZeneca. Fjölmargar rannsóknir á undanförnum árum hafa sýnt fram á hve nauðsynlegt er að lækka kólesteról til að koma í veg fyrir hjarta og æðasjúkdóma. Lækkun kólesteróls  er mikilvægasti hlekkurinn í forvörnum á því sviði. Með hollu mataræði og hreyfingu má ná ákveðnum árangri, en oft þarf að grípa til lyfjameðferðar til að lækka kólesteról.</description>
Fiskidagar hjá Bestfisk
      <description>Sú nýbreytni hefur verið tekin upp hjá fiskvinnslufyrirtækinu Bestfisk að halda fiskidaga á Höfn. Þeir eru haldnir í fyrsta skipti í dag og á morgun föstudag. Verði undirtektir bæjarbúa jákvæðar er stefnt á að halda fiskidaga tvisvar sinnum í mánuði. Að sögn Sívars Árna Scheving hjá Bestfisk hefur þetta framtak mælst vel fyrir hjá þeim sem eru fastakúnnar fyrirtækisins. Boðið verður upp á saltfisk, ýmsa saltfiskrétti, hið fræga konungshakk og margt fleira fiskgóðgæti í matinn. Á síðustu Humarhátíð kynnti Bestfiskur saltfiskréttina og voru þeir mjög vinsælir meðal Humarhátíðargesta.</description>