Örlög jarðstöðvarinnar við Höfn ekki ráðin
Nú þegar 25 ára sögu jarðstöðvarinnar Skyggnis sem er austan við Úlfarsfell er lokið og hann rifinn niður er spurt hvað verður um varajarðstöðina fyrir hann sem blasir við vegfarendum sem keyra til og frá Höfn, nánar tiltekið í landi Hafnarness. Samkvæmt upplýsingum frá Evu Magnúsdóttur upplýsingafulltrúa Símans hefur engin ákvörðun verið tekin um framtíð varajarðstöðvarinnar í Hafnarneslandi en sá búnaður hefur ekki verið í notkun í nokkra mánuði. Um árabil fóru millilandasímtöl um gervihnött í gegnum Skyggni, sem var um tíma eina símatengingin frá landinu. Frá 1994 þegar sæsímastrengurinn CANTAT var tekinn í notkun gegndi Skyggnir einkum hlutverki varastöðvar. Nú leysa sæstrengirnir FARICE og CANTAT hvor annan af ef bilun verður, en langan tíma tók að koma á varasambandi um gervihnött í gegnum Skyggni ef CANTAT bilaði.
Kostnaður við gervihnattasamband fór líka hækkandi og mælti allt gegn því að halda rekstrinum áfram, að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans.
Væri ekki góð hugmynd núna í skammdeginu að setja jólaseríur á skerminn og lýsa hann fallega upp? Því er hér með komið á framfæri.





Skrifa athugasemd