Ferðaþjónustuklasa formlega hleypt af stokkunum
Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands var formlega hleypt af stokkunum í gær, 26.okt. Athöfnin fór fram á Jöklasýningunni á Höfn að viðstöddum ferðaþjónustuaðilum í Sveitarfélaginu, bæjarstjóra, formanni bæjarstjórnar, Ernu Hauksdóttur framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar og Elvari K. Valsyni klasasérfræðingi frá Impru. Eftir að Ari Þorsteinsson hafði boðið gesti velkomna fór hann yfir helstu atriði við undirbúning Ferðaþjónustuklasans og þar kom fram að fyrir tæpu ári eða 12. nóv. 2004 var haldið málþing á vegum Frumkvöðlaseturs Austurlands, Atvinnumálanefndar Hornafjarðar og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands sem bar yfirskriftina Klasar, samstarf og samkeppni. Markmið þessa málþings var að fá svar við þeirri spurningu hvort klasa gæti verið dreifikraftur atvinnuþróunar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Á málþingið mættu 40 manns, sem talið er vera góð mæting, og var það mat þeirra sem þarna mættu að klasa væri gott verkfæri til atvinnusköpunar.
Fundarmenn töldu að tækifærin mundu liggja í náttúrunni, umhverfi okkar eða í ferðaþjónustu og í framhaldi af þessu málþingi hittust þeir aðilar sem höfðu áhuga á klasa og ferðaþjónustu og formuðu stefnu klasans. Í Ferðaþjónustuklasanum er markmiðið að bæta afkomu í greininni, lengja ferðamannatímann og viðverutíma ferðamanna, fjölga störfum í ferðaþjónustunni, leita leiða til að taka upp kröftuga markaðssetningu fyrir svæðið, þróa vörur og nýjar lausnir til að selja utan við háannatímann.
Erna Hauksdóttir lýsti ánægju sinni með opnun Ferðaþjónustuklasans og sagði áhugavert að Sveitarfélagið og stofnanir skuli taka þátt í þessu verkefni og það gefi til kynna að þau hafi skilning á mikilvægi ferðaþjónustunnar. Þetta verkefni krefst gæða, nýsköpunar og fagmennsku sagði Erna, það þarf bæði reynslu og þroska til að átta sig á því að það er ekki hann Siggi á næsta bæ sem er aðal samkeppnisaðilinn heldur ferðaþjónustufyrirtæki í útlöndum sem eru aðal samkeppnisaðilarnir í dag. Það er megin viðfangsefni allra ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi að fá ferðamanninn til landsins, það er síðan auðveldara að fá hann frá Reykjavík til Suðausturlands en frá útlöndum. Nýsköpun og vöruþróun er megin undirstaða allrar markaðssetningar og grundvallarregla á hverjum stað að ákveða hvað þið ætlið að selja, hvað á að markaðssetja og þá er afþreying mikilvægust. Þið hafið hér í kring um ykkur einhverja stórkostlegustu náttúru sem hægt er að hugsa sér en það er ekki nóg, það þarf að búa til pakka, afþreyingu sem tengist staðnum og það þarf alltaf að vera að þróa vöruna og skapa nýjar.




Skrifa athugasemd