Október
Frá undirritun samnings við Landbúnaðarráðuneytið
Frá undirritun samnings við Landbúnaðarráðuneytið
Frá undirritun samnings við Landbúnaðarráðuneytið. Frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Guðni Ágústsson, Albert Eymundsson, Kjartan Hreinsson og Þrúðmar Sigurðsson

27.10.2005 Október

Landbúnaðarráðuneytið styrkir hestamannafélagið

Mánudaginn 24.okt. skrifuðu Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Albert Eymundsson bæjarstjóri undir samning þar sem Landbúnaðarráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður styrkja hestamannafélagið Hornfirðing til uppbyggingar og rekstrar reiðskemmu. Guðni Ágústsson sagði að mikil nauðsyn væri á byggingu reiðskemmu eða reiðhöll, hvort sem menn vildu nefna það, þetta hefði menningarlegt gildi fyrir sveitarfélagið og stuðlaði að uppbyggingu hestamennsku á svæðinu og nauðsynlegt væri að fjölga slíkum byggingum þar sem engin reiðhöll er á svæðinu frá Skagafirði austur og suður fyrir Hellu.

Við erum búnir að skrifa undir samning um reiðhöllina sagði Kjartan Hreinsson formaður hestamannafélagsins, en ekki er búið að ákveða hvernig hús verður fyrir valinu. Húsið verður reist við Stekkhól, búið er að velja staðinn, merkja fyrir húsinu og kanna dýpt jarðvegsins. Kjartan sagði að vandað yrði til þessarar byggingar og hann á von á að ákvörðun um framhaldið verði tekin fljótlega.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica