Blása í lúðra og halda Klasadag
Nú ætlum við að blása í lúðra og halda Klasadag miðvikudaginn 26 október 2005 segir Gísli Már Vilhjálmsson athafnamaður. Halda á almenna kynningu á Klösum og hvernig menn hafa notað klasaaðferðafræðina til atvinnusköpunar og hagvaxtar fyrir fyrirtæki og svæði. Elvar Knútur Valsson klasamaður frá Impru heldur erindi um Klasaaðferðafræðina og notkunargildi hennar. Þessi kynningarfundur verður haldin í ráðstefnusal Nýheima og hefst klukkan 14:00 Allir eru velkomnir. Klukkan 15:00 verður haldin fundur með matvælaframleiðendum til sjávar og sveita um myndun á klasa um mat og menningu og kannaður áhugi framleiðanda á þátttöku í matvælasýningu svæðisins Suðausturlands. Allir eru velkomnir. Klukkan 16:00 á að hleypa af stokkunum með formlegum hætti Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands og fer sú athöfn fram á Jöklasýningunni á Höfn. Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar verður gestur fundarins.
Gísli Már segir alla velkomna og að dagar tuðsins séu taldir og nú hefjist dagar athafna og gleði.





Skrifa athugasemd