Október
Lúðuveiðar
Lúðuveiðar
Hólmar og Örn Þór ásamt Unnsteini Þráinssyni á Sigga Bessa (Úr myndasafni mynd BA)

25.10.2005 Október

Aflamet á Sigga Bessa

Aflamet varð á Sigga Bessa SF 97 í gær þegar hann landaði í dag 9,8 t af góðum fiski, mestur hluti aflans var þorskur.Unnsteinn Þráinsson eigandi bátsins og skipstjóri var að vonum ánægður með aflann sem fékkst í Lónsdýpinu. Við þurftum að fara tvær ferðir, fyrst drógum við 26 línur og fórum með 71/2 tonn í land og sóttum síðan tíu línur sem eftir voru og aflinn þá var 2,3 tonn. Afli línubáta hefur verið mjög góður í allt haust en minni hjá handfærabátum. Unnsteinn sagði að nú væri komin bræla og ekki sjóveður í bili a.m.k.

Með Unnsteini á Sigga Bessa er Birnir Ásbjörnsson félagi hans á sjónum sl.fjögur ár.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica