Hamra skal járnið meðan það er heitt
Í kvöld, mánudaginn 24.okt. hafa alþingismennirnir Guðni Ágústsson og Ísólfur Gylfi Pálsson boðað til fundar á Hótel Höfn kl.20.00 um atvinnu- og samgöngumál í Austur-Skaftafellssýslu. Þessir tveir málaflokkar eru vafalítið það sem efst er í huga Hornfirðinga og hvernig sé best hægt að vinna úr þeim málum og því tilvalið að nota tækifærið og ræða við þingmennina. Hvað vegamál í sýslunni varða þá hafa menn stórar áhyggjur af hvað langt er í úrbætur á vegi og brú yfir Hornafjarðarfljót og ekki síður í Hvalnes og Þvottárskriðum þar sem vegurinn er meira og minna stórhættulegur á hvaða tíma árs sem er og veðravíti mikið á því svæði og Hvalnessvæðinu svo veginum lokast iðulega vegna stórviðra. Starfsmenn Vegagerðarinnar sem manna best þekkja þessar erfiðu aðstæður við skriðurnar segja einu raunhæfu framkvæmdina vera jarðgöng úr Lóni yfir í Álftafjörð sem einnig styttir leiðina talsvert.
Fréttamaður vefsins hafði samband við Guðna Ágústson fyrir helgina og spurði hann m.a. hvað hægt væri að gera til að flýta þessum vegaframkvæmdum í sýslunni t.d. vegna sívaxandi umferðar og þungaflutninga og þar með aukinni slysahættu; ,, Það er fyrst og fremst mikilvægt fyrir heimamenn og þingmenn kjördæmisins að ná samstöðu um slík mál, í fyrsta lagi að vita hvaða leið þeir vilja velja og ná samstöðu um það, þá eru alltaf opnir möguleikarnir eins og við sjáum hér í svo mörgu öðru. Jarðgöngin undir Almannaskarð breyta miklu fyrir Austur-Skaftfellinga og mér finnst að þau hafi komið fyrst og fremst af því að heimamenn og stjórnmálamenn náðu samstöðu um að jarðgöng væri langskynsamlegasta lausnin. Sama er að segja um Hornafjarðarfljótið sem markað er í úr símapeningunum 800 millj.kr. Það mun stytta hringveginn og breyta miklu fyrir höfuðstöðvar Austur-Skaftafellssýslu og landið í heild, þetta er verkefni sem við verðum að setjast yfir og leysa eins og önnur mál", sagði Guðni Ágústsson.
Flugvallarmál og flugsamgöngur munu trúlega verða tekin til umræðu á fundinum því góðar flugsamgöngur eru gríðarlega mikilvægar fyrir Hornfirðinga og mikil nauðsyn að hafa öruggan flugvöll þar sem langt er í næsta sjúkrahús.
Guðni segist ánægður með þá bjartsýni sem ríki í atvinnumálum hér og að sér finnist þetta allt hafa snúist til betri vegar í sýslunni. Ég er bjartsýnn á atvinnulífið og auðvitað þarf að fylgja því eftir og gamalt máltæki segir ,,hamra skal járnið meðan það er heitt" og það er það sem við þurfum að gera nú af miklum krafti.
Við komum þarna til ykkar bjartsýnir og lífsglaðir og viljum hitta sem flesta, konur og karla, fara yfir mál og verða ykkur að liði þarna. Þetta er eitt af þeim svæðum sem á að vera mikið uppgangssvæði, sagði Guðni.
Þá er bara að drífa sig á Hótel Höfn í kvöld og fylgja eftir góðum hugmyndum um atvinnu- og samgöngumál í Austur-Skaftafellssýslu





Skrifa athugasemd