Með miklar og stórar hugmyndir
Undirbúningur fyrir vaxtasamninginn gengur vel segir Gísli Már Vilhjálmsson og við erum búin að halda tvo vinnufundi. Sameiginlegur fundur með nefndunum á Austurlandi var haldinn á Egilsstöðum sl. mánudag þar sem farið var yfir þær hugmyndir sem fram hafa komið á öllum svæðunum. Menn eru með miklar og stórar hugmyndir sem eru mikið til staðbundnar fyrir hvert svæði fyrir sig, sem er mjög gott, og næst á dagskrá er að forgangsraða þeim hugmyndum sem komnar eru. Hér á okkar svæði eru komnar margar frábærar hugmyndir sem líta vel út og full ástæða er til að þær beri góðan árangur og nú höldum við áfram að vinna í þeim, sortera og leggja áherslur á ákveðna hluti. Þetta eru hugmyndir sem m.a. tengjast sjávarútveginum, humrinum og okkar sérstöku náttúru sem býður upp á ótal möguleika.
Stefnt er að því að stofnsetja Ferðamálaklasann formlega nú í lok október. Til þess að geta stofnað klasa þarf ákveðinn fjöldi fyrirtækja að skrifa undir samstarfsvilja og þegar það er fengið hefur mikið áunnist, þá er kominn stjórn, starfsmaður og komin full alvara í málin þar sem vænta má árangurs segir Gísli. Fram að þessu hafa þessi mál einungis verið í undirbúningi og nú ætlum við að gera þetta að veruleika. Hér er mikill áhugi hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustunni og með þessari formlegu stofnun Ferðamálaklasans erum við vel sett með þessi mál.





Skrifa athugasemd