Október
92_tolvutimi
92_tolvutimi
Í tölvutíma á unglingastigi

21.10.2005 Október

Unnið að endurskoðun skólastefnu Hornafjarðar

Um þessar mundir er unnið að endurskoðun á skólastefnu Hornafjarðar. Sigríður Kristinsdóttir formaður skólanefndar segir að í gangi sé metnaðarfull vinna en eftir skólamálaþingið í febrúar sl. var ákveðið að endurskoða skólastefnuna. Skipaðir hafa verið vinnuhópar sem fjalla um málefni leikskóla, grunnskóla og tónskóla, en þar eiga sæti, kennarar og aðrir starfsmenn, skólanefndarmenn, fulltrúar foreldra og sveitarstjórnarmenn.Vinnuhópar hafa þegar hafið störf og starfsmannafundir verið haldnir. Í næstu viku verður foreldrafundur þar sem leitað verður eftir viðhorfum foreldra og annarra sem láta sig skólamál varða. Segir Sigríður að mikilvægt sé að foreldrar mæti á fundinn, komi þar skoðunum sínum á framfæri og vera þannig beinir þátttakendur í stefnumótun í skólamálum.

Fundurinn verður Hafnarskóla þriðjudaginn 25. október næstkomandi kl. 20:00.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica