Október
Argo fjölfar
Argo fjölfar
Sigurður Ó. Sigurðsson afhendir Sigurði Grétari Ragnarssyni lykilinn af fjölfara að viðstöddum starfsmönnum Flugmálastjórnar og Páli Björnssyni sýslumanni.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

20.10.2005 Október

Hornafjarðarflugvöllur fær afhent Fjölfar

Flugmálastjórn afhenti í morgun starfsmönnum Flugmálastjórnar á Hornafirði Argo fjölfar sem staðsett skal vera á Hornafjarðarflugvelli. Fjölfar, sem er íslenska heitið á Argo, er eina farartækið sem reynst hefur fært um að komast um leirurnar og fjörðinn við syðri enda flugbrautarinnar. Fjölfari reyndist vel við prófanir á þessu svæði sem reynst hefur ófært öllum öðrum farartækjum sem reynd hafa verið þar. Argo fjölfar á beltum fór án erfiðleika yfir leirurnar,blautar sem og þurrar eins yfir þau svæði sem eru mjög erfið og jafnvel ekki eru fær fyrir fótgangandi. Það er því mikið öryggi að hafa slíkt farartæki á staðnum ef slys yrði eða einhverra hluta vegna þyrfti að koma fólki til hjálpar á þessu svæði. Prófanir á tækinu hafa farið fram á Skálafellsjökli, Þórsmörk og mörgum fl.stöðum við margskonar aðstæður og eru menn ánægðir með útkomu þeirra.

Argo fjölfari er fjölnota torfærutæki með mikla drifgetu í torfærum auk þess að geta siglt á vatni. Argó fjölfari, sá sem hér verður staðsettur er 8 hjóla á beltum með drifi á öllum hjólum, 674 cc Kohler vél, burðargeta er 521 kg, toggeta 818, hámarksheaði 35 km/klst en í vatni er hraðinn 4-5 km. 4 hestafla utanborðsmótor er væntanlegur á næstunni. Verð tækisins með aukabúnaðinum er rúmar 3 mkr. Flugmálastjórn á þrjá Argo-fjölfara og eru hinir tveir á flugvöllunum á Akureyri og Sauðárkróki.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica